Sumarstörf hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd

Vinnumálastofnun á Skagaströnd leitar eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Umsækjendur þurfa að hafa góða leikni í mannlegum samskiptum, lipurð í tölvunotkun og áhuga á að skila góðu starfi. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum SFR. Framhalds- eða háskólamenntun er kostur sem og reynsla af skrifstofustörfum. 

Helstu verkefni Greiðslustofu Vinnumálastofnunar eru afgreiðsla umsókna um atvinnuleysisbætur og upplýsingagjöf. 

Hlutverk Greiðslustofu er að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið. Á skrifstofunni á Skagaströnd starfa um 25 manna liðsheild. 

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og eða kynna sér starfsemi Vinnumálastofnunar á www.vinnumalastofnun.is 

Líney Árnadóttir forstöðumaður veitir upplýsingar í síma 860 2053 og tekur við umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið liney.arnadottir@vmst.is. 

Umsóknarfrestur er til 19. apríl.