Sumartónleikar kirkjukórs Hólaneskirkju

Í gær, Fimmtudaginn 18. júní hélt kirkjukór Hólaneskirkju sumartónleika. Vel var mætt og var þemað fuglasöngur. Arna Rún Arnarsdóttir, Ástrós Elísdóttir, Einar Haukur Arason, Halldór Gunnar Ólafsson, Lilja Guðlaug Ingólfsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Sóley Sif Jónsdóttir fluttu einsöng. Sigurjón Ýmir Alexson spilaði á gítar og Ísak Andri Jónsson spilaði á Bassa. Flutti kórinn öll lögin með prýði undir góðri stjórn Hugrúnar Sifjar Jónsdóttur en það er ekki sjálfsagt að 460 manna sveitarfélagi eigi svona marga hæfileikaríka söngvara. Hugrún Sif Jónsdóttir organisti hefur nú stjórnað kórnum í 20 ár sem sannarlega hefur verið samfélaginu okkar til heilla.

Aðgangseyrir á tónleikana voru frjáls framlög og er þeim sem vilja styrkja kirkjukórinn er bent á bankaupplýsingarnar þeirra:

kt 650169-6469

reikningsnr: 0161-05-070173

Óskar sveitarfélagið kirkjukórnum innilegar til hamingju með vel heppnaða tónleika.