Sveitarfélagið fær úthlutun úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða

Það er ánægjulegt að segja frá því að sveitarfélagið hlaut úthlutun úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða vegna 2022.

Í úthlutun segir:

Sveitarfélagið Skagaströnd Spákonufellshöfði - Gönguleiðir og fuglaskoðun. Kr. 15.207.648,- styrkur til að bæta aðgengi og vernda fugla- og plöntulíf á Spákonufellshöfða með því að stýra ferðamönnum um ákveðin svæði og hvetja þá til að fara ekki af göngustígum. Verkefnið felur í sér úrbætur á göngustígum, frágangi á bílastæði sem og hönnun og byggingu á fuglaskoðunarhúsi sem vöntun er á. Fuglalífið einkennist af sjófuglum og mófuglum og má finna fræðsluskilti um fugla og plöntur á göngu um svæðið. Uppbygging innviða og frágangur á viðkvæmum náttúruskoðunarstað. Verkefnið bætir aðgengi, stuðlar að náttúruvernd og er á áfangastaðaáætlun svæðisins. 

Þetta eru frábærar fregnir fyrir sveitarfélagið og einn af mikilvægum þáttum í að byggja upp ferðaþjónustu á Skagaströnd!

 

Umsóknina má sjá hér

 

Sveitarstjóri