Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl n.k. klukkan 12:00. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Skagaströnd mun taka á móti framboðum föstudaginn 10. apríl 2026 að Einbúastíg 2, Skagaströnd milli klukkan 11:00 og 12:00.
Hverjum framboðslista skal fylgja:
a. Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti framboðsins og listabókstaf þess. Ef framboðið hefur ekki listabókstaf skal óska eftir honum við kjörstjórn sveitarfélagsins.
b. Yfirlýsing þeirra sem eru á framboðslistanum um að þeir samþykki að taka sæti á listanum.
c. Upplýsingar um hverjir séu umboðsmenn listans ásamt samþykki þeirra.
d. Meðmæli með framboðinu – að lágmarki 10 og hámarki 20. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Ísland.is – Frumrit meðmæla hafi þeim verið safnað á pappír.
F.h. kjörstjórnar Sveitarfélagsins Skagaströnd
Lárus Ægir Guðmundsson form.