Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí nk. og er athygli vakin á eftirfarandi dagsetningum:
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Skagagstrandra hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is, sjá nánar hér: Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.
Hægt er að mæla með framboðum hér: Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is
Kjörstaður: Fellsborg
Fyrir áhugasama er mælt með að hlusta á nýjasta þátt Ráðhússins - hlaðvarps Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar fræðir hlustendur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Í þættinum er einnig rætt um listabókstafi, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram. Þáttinn má nálgast hér.
Ef spurningar vakna skal hafa samband á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is