Þökkum Kvennafrídaginn

Konur á Skagaströnd þakka framkvæmdanefnd um Kvennafrídag 2010 fyrir frábæran baráttudag í gær. Í framkvæmdanefndinni voru Eva Gunnarsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. 

Kvennafrídagurinn er mikilvægur í hugum okkar kvenna og erum við því afar ánægðar með að hafa fengið tækifæri til að fagna honum saman og þétta raðirnar. Bestu þakkir fyrir  framtakssemina nefndarkonur. Áfram stelpur!

Gera má ráð fyrr að um fimmtíu konur hafi gengið um Skagaströnd í gær. Gangan endaði í Bjarmanesi þar sem haldinn var baráttufundur. Þar var boðið upp á kaffi og kökur. Líney Árnadóttir, framkvæmdastjóri Vinnumálastofnunar á Skagaströnd, hélt hvatningaræðu um jafnréttismál. Auður Herdís Sigurðarsdóttir, félagsmálastjóri í Austur-Húnavatnssýslu, flutti erindi um heimilisofbeldi.

Í lok fundarins stóðu konur upp og sungu Áfram stelpur. Meðfylgjandi myndir tók Árný Sesselja Gísladóttir.