Þriðji ísbjörninn fór í Höfðaskóla

Þriðji ísbjörninn var alveg lifandi kominn inni í Höfðaskóla í vikunni. Hann var þó algjörlega meinlaus enda aðeins skáldsaga eftir Þorgrím Þráinsson. 


Bókina skrifaði Þorgrímur á Skagaströnd síðastliðið sumar en sögusviðið er einmitt í A-Húnavatnssýslu. Hugmyndina af sögunni fékk hann þegar hann dvaldi í sumar í Nes-listamiðstöðinni á Skagaströnd þegar ísbirnir fóru að gera vart við sig í nágrenninu. 


Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Spákonuarfur og Nes listamiðstöð ákváðu í sameiningu að færa öllum nemendum Höfðaskóla eintak af bókinni að gjöf. Tilgangurinn er að hvetja til bóklestrar og skapandi skrifa. 


Þorgrímur mætti í skólann mánudaginn 15. desember, las upp úr bókinn og áritaði auk þess sem hann ræddi við eldri nemendur um gildi frumkvæðis og ábyrgðar á eigin lífi. 


Gefendur, í samstarfi við Höfðaskóla, stefna að því á nýju ári að koma á smásagnasamkeppni innan skólans.