Þverskurður 2 - ný sýning í Gamla kaupfélaginu

Textílsýningin ,,Þverskurður 2” verður opnuð í sýningarsal Ness listamiðstöðvar í Gamla kaupfélaginu á Skagaströnd sunnudaginn 6. september kl. 15:00.

Textílfélagið er félag textíllistamanna og hönnuða. Það fagnar 35 ára afmæli á þessu ári. Sýningin í Gamla kaupfélaginu er liður í sýningarröð sem félagið stendur fyrir af því tilefni í þeim tilgangi að kynna verk félagsmanna fyrir landsmönnum. 

Sýnendur eru bæði hönnuðir og textíllistamenn sem vinna í ólík efni með mismundandi aðferðum og eru verkin á sýningunni þverskurður þess sem er að gerast innan textíllistar í landinu.

Styrktaraðilar sýningarinnar eru Menningarráð Norðurlands vestra og Minningarsjóður um hjónin frá Garði og Vindhæli.

Sýningin stendur frá 6-27. september og er opin um helgar frá 13-17 og á virkum dögum eftir samkomulagi í síma 452 2816 og eru allir hvattir til að sjá sýninguna.