Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Vegna aukins fjölda smita á Norðurlandi hefur HSN ákveðið að loka tímabundið fyrir heimsóknir á sjúkra- og hjúkrunardeildir frá og með 4. nóvember.

  • Heimsóknarbann gildir til 17. nóvember en staðan verður þá endurmetin.
  • Íbúar haldi sig innan heimila og skulu ekki fara í heimsóknir eða ferðir utan heimilis.
  • Starfsfólk er áfram hvatt til að gæta ítrustu varúðar í samskiptum og umgengni við annað fólk utan vinnutíma.
  • Áfram er grímuskylda hjá starfsfólki og starfsfólk fer ekki á milli svæða nema nauðsynlegt sé og í samráði við yfirmenn.
  • HSN hvetur aðstandendur til að nýta síma, myndsímtöl og aðra mögulega samskiptahætti sé þess kostur. Starfsfólk er reiðubúið að veita aðstoð ef þess þarf.
  • Undanþága frá heimsóknarbanni er veitt við mikil veikindi íbúa og þarf þá að fá leyfi deildarstjóra.

Þetta er erfið ákvörðun að taka og vonumst við til þess að hægt verði að aflétta heimsóknarbanni sem fyrst.

Framkvæmdastjórn HSN