Tilkynning um lokun á Strandgötu

Vegna framkvæmda þarf að loka hluta Strandgötu við Vík frá kl. 10:00 þriðjudaginn 24. nóvember 2026. Lokunin mun standa eitthvað fram eftir degi.

Hægt verður að komast leiðar sinnar um göngustíginn sem liggur með Strandgötu, en til að draga úr umferð á svæðinu eru íbúar og aðrir vegfarendur hvattir til að nota Vetrarbraut ef kostur er.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilning og samvinnu.