Tólf og hálf milljón í menningarstyrki

Aðeins tvö verkefni frá Skagaströnd hlutu styrki á vegum Menningarráðs Norðurlands vestra, en fyrri úthlutun verkefnastyrkja ráðsins fyrir árið 2011 fór fram í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi þriðjudaginn 3. maí. 

Menningarfélagið Spákonuarfur fékk 250.000 krónur til að gera refill – ævi Þórdísar spákonu í máli og myndum og Andrea Rose Cheatham Kasper fékk 100.000 krónur fyrir danslist; Peninsula: An exploration of isolation.

Í ár fengu 50 aðilar styrki hjá Menningarráði, samtals að fjárhæð 12,5 milljónir króna. Hæstu styrkirnir að þessu sinni námu einni milljón en þeir lægstu voru 50 þúsund krónur. 

Menningarstyrkirnir fara nú lækkandi eins og sjá má af eftirfarandi:
  • Þann 28. október 2010 var úthlutað 17,5 milljónum króna.
  • Þann 22. apríl 2010 var úthlutað 15.3 milljónum króna.
  • Þann 7. október 2009 var úthlutað 18.3 milljónum króna.
Í ár eru þrír þættir sem skera sig úr við úthlutunina en það eru styrkir til menningartengdrar ferðaþjónustu, bókmennta og tónlistar.

Eftirtaldir aðilar fengu styrki:

1.000.000 kr. Byggðasaga Skagafjarðar, Byggðasaga Skagafjarðar 6. bindi (bókaútgáfa)
1.000.000 kr. Laxasetur Íslands, Hönnun og uppsetning sýningar
1.000.000 kr. Útsaumur í sveitinni, Vatnsdæla á refli
750.000 kr. Skotta kvikmyndafjelag ehf. Tvö verkefni: Lífið – á sjó. Þáttaröð nr. 2 og Stuttmynda- og margmiðlunarnámskeið
550.000 kr. Byggðasafn Skagfirðinga, Þrjú verkefni: Hannyrðakonur af Svaðastaðaætt  (bókaútgáfa), Miðaldakirkjur 1000-1300 (útgáfa), Framúrskarandi fólk (sýning)
500.000 kr. Selasetur Íslands, Uppsetning sýningar í nýju húsnæði
500.000 kr. Blöndubyggð ehf. Eyvindarstofa á Blönduósi – uppsetning sýningar
500.000 kr. Raggmann ehf. Tónlistarhátíðin Gæran 2011 

400.000 kr. Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps, Ábúendatal Bólstaðarhlíðarhrepps 1703-2003  (ritun)

300.000 kr. Hafíssetrið f.h. samstarfshóps safna og setra í Húnavatnssýslum
Söguleg safnahelgi innan verkefnisins, Huggulegt haust 2011 
300.000 kr. Undirbúningshópur um gerð kvikmyndar , Gerð kvikmyndar um menningu, sögustaði og náttúru í Húnavatnssýslu  
300.000 kr. Dægurlagakeppni á Sauðárkróki, Dægurlagakeppni í Sæluviku 2011

250.000 kr. Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga, Útgáfa ársritsins Húna á 80 ára afmæli USVH
250.000 kr. Menningarfélagið Spákonuarfur, Refill – Ævi Þórdísar spákonu í máli og myndum
250.000 kr. Sögusetur íslenska hestsins, Fjölþætt sýning á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum 2011
250.000 kr. Leikfélag Sauðárkróks, Gamanleikritið Svefnlausi brúðguminn  (leiksýning)
250.000 kr. Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, Fornt handverk og nýtt til eflingar atvinnustarfsemi
250.000 kr. Söngskóli Alexöndru. Upptaka og útgáfa á geisladisk, auk útgáfutónleika,  með nemendum Söngskólans.
250.000 kr. Þjóðleikur á Norðurlandi. Þjóðleikur á Norðurlandi (leiklistarhátíð ungs fólks) 

200.000 kr. Grettistak ses. Víkingaleikir á Grettishátíð 2011 og námskeið fyrir unglinga
200.000 kr. Sönglög á Sæluviku. Sönglög á Sæluviku   (tónleikar)
200.000 kr. Barokksmiðja Hólastiftis. Barokkhátíð á Hólum 2011 
200.000 kr. Jónsmessunefnd Hofsósi. Jónsmessuhátíð á Hofsósi 2011
200.000 kr. Blönduósbær. Tvö verkefni: Sönglagakeppni barna og Kvöldvaka á Húnavöku 2011

150.000 kr. Alexandra Chernyshova. Ekki skamma mig, séra Tumi (bl. dagskrá)
150.000 kr. Félag myndlistarfólks í Skagafirði. Litbrigði samfélags (myndlistarsýning) 
150.000 kr. Tónlistarskóli Skagafjarðar. Einu sinni var – tónleikar með lögum af vísnaplötu  Gunnars Þórðarsonar  
 
100.000 kr. Stefanía Hjördís Leifsdóttir. Það er líf í Hrútadal. Málþing til heiðurs Guðrúnu frá Lundi o.fl.
100.000 kr. Sigríður Hjaltadóttir. Með huga og hamri Jakobs H Líndals - málþing
100.000 kr. Sveitarfélagið Skagafjörður og Aura – menningarstjórnun og ráðgjöf. Skapandi smiðjur í rit- og tónlist fyrir börn í sveitum Skagafjarðar
100.000 kr. Gunnar Rögnvaldsson. Sögur úr sveitinni    (bl. dagskrá)
100.000 kr. Gísli Þór Ólafsson. Næturgárun   (geisladiskur)
100.000 kr. Benedikt Sigurðsson - Lafleur. Virkjum andann    (bl. dagskrá)
100.000 kr. Ríkíní, félag um forna tónlist. Þriðja þing Ríkíní á Hólum í Hjaltadal 2011
100.000 kr. Reiðhöllin Svaðastaðir. Sýning gamalla vinnsluaðferða í landbúnaði á Sveitasælu 2011
100.000 kr. Andrea Rose Cheatham Kasper. Peninsula: An exploration of isolation   (danslist)
100.000 kr. Multi Musica. Terra Mater - útgáfutónleikar 
100.000 kr. Sönghópur Félags eldriborgara í Skagafirði. Söngskemmtun á degi aldraðra 
100.000 kr. Karlakórinn Lóuþrælar. Vortónleikar 2011    
100.000 kr. Karlakórinn Heimir. Tónleikar í Sæluviku 2011
100.000 kr. Samkórinn Björk og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Söngur um sumarmál    (tónleikar)
100.000 kr. Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls. Með hækkandi sól    (bl. dagskrá)
100.000 kr. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Sumarsýning 2011
100.000 kr. Töfrakonur / Magic women ehf. Ævintýri tvíburanna  e. Birgittu H. Halldórsdóttur (bókaútgáfa) 
100.000 kr. Pétur Jónsson. Þjóðsagan um Hvítserk    (bókaútgáfa)
100.000 kr. Á Sturlungaslóð. Litabók fyrir börn um Sturlungatímann í Skagafirði   (bókaútgáfa)
100.000 kr. Margrét Jóhannsdóttir. Bókin um kindurnar okkar   (bókaútgáfa)
100.000 kr. Landnám Ingimundar gamla. Tvö verkefni: Myndlistarsýning Ingólfs Björgvinssonar og Tónleikar Báru Grímsdóttur á Þingeyrum sumarið 2011 

50.000 kr. Maddömurnar Sauðárkróki. Sumarsýning 2011
50.000 kr. Ólafur Þ. Hallgrímsson. Vorvaka í Húnaveri til minningar um Guðmund Halldórsson rithöfund frá Bergsstöðum