Tónleikar Brass Con Brio í Hólaneskirkju

Brass Con Brio
Brass Con Brio
 

Sænska blásarasveitin Brass Con Brion heldur tónleika í Hólaneskirkju

fimmtudaginn 18. september kl 17.30

 

Brass Con Brion er átta manna hljómsveit nemenda í Menningarskóla Växjöbæjar sem er vinabær Skagastrandar.

Hljómsveitarmeðlimir eru á aldrinum 15-18 ára og spila allt frá sígildri tónlist til pop og rokktónlistar. Þegar sveitin leikur rokktónlist sest einn af trompetleikurunum við trommusettið og gítarkennari skólans leikur á rafmagnsgítar.

 

Hljómsveitin er í tónlistarferð til Íslands og gerði sér sérstaka ferð til vinabæjarins Skagastrandar til að halda tónleika.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir.

 

Växjö kulturskola      Norræna félagið       Sveitarfélagið Skagaströnd       Tónlistarskóli A-Hún