Troskvöld Lions á Skagaströnd.

Um helgina stóð Lionsklúbbur Skagastrandar fyrir Troskvöldi í Fellsborg. Fram voru bornir 10 sjávarréttir m.a. kúlaður vestfirskur steinbítur, skötustappa í fiðringi og siginn norskur þorskur.

 

Eldamennska og framreiðsla var öll unnin af klúbbfélögum. Yfirkokkar voru Gunnar Reynisson og Sigurbjörn Björgvinsson. Klúbburinn nýtur þess oft að innan vébanda hans eru frábærir matreiðslumenn.

 

Fjölmargir gestir voru mættir á Troskvöldið m.a frá Lionsklúbbi Blönduóss. Auk glæsilegs veisluborðs var boðið upp á tónlist og gamanmál. Sr. Gísli Gunnarsson frá Glaumbæ í Skagafirði flutti ræðu kvöldsins.

 

Þótti Troskvöldið takast mjög vel. Er ljóst að þessi viðburður er að festast í sessi í menningarlífi okkar.

 

Lionsklúbbur Skagastrandar var stofnaður árið 2004. Hefur klúbburinn þegar beitt sér fyrir mörgum góðum málum. Eitt af stærstu verkefnum klúbbsins í dag er að koma upp útsýnisskífu á Höfðanum.

 

Formaður Lionsklúbbs Skagastrandar er Guðmundur Finnbogason