Umhverfisdagur - taka tvö!

Umhverfisdagur taka tvö!

Fimmtudaginn 15. maí kl. 16:00 - 18:00 ætlum við að taka annan snúning á Umhverfisdegi þar sem veðrið var eitthvað að stríða okkur síðast.

Við ætlum að hittast í áhaldahúsinu þar sem skipað verður í leitir (ruslaleitir) og afhentir pokar. Allir sem vettlingi geta valdið, fullorðnir sem börn, eru hvattir til að koma og taka þátt.

Margar hendur vinna létt verk.

Við óskum eftir bílum/fjórhjólum með kerru til að taka þátt. Börn eru á ábyrgð fullorðinna.

Endum svo daginn saman og fögnum góðu verki með grilli á við áhaldahúsið frá 17:30 í góða veðrinu. Það er spáð 15 stiga hita!

 

Gerum fallega staðinn okkar enn fallegri.

 

Helena Mara, Sigríður Björk og Gígja Heiðrún.