Umhverfisviðurkenning Skagastrandar 2019

Óskað er eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenningar Skagastrandar 2019.
 
Hægt er að senda tölvupóst á netfangið;  sveitarstjori@skagastrond.is eða með því að hringja á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455-2700, fyrir 13. september nk. 
 
Með umhverfisviðurkenningu vill sveitarstjórn vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilega bæi og atvinnulóðir.
 
Sveitarstjórn