Umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún óskast

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Austur-Húnavatnssýslu sem staðsett verður á Blönduósi.

Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini og yfirlit um fyrri störf. Umsókn skal senda til skólameistara (ingileif@fnv.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum og líðan þeirra í námsveri á Blönduósi, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur, samskipti við kennara FNV,  seta í kennslustundum í námsveri og í námslotum á Sauðárkróki, agastjórnun og dagleg umsjón með námsveri og tækjabúnaði námsvers.

Hæfnikröfur
Við leitum að  fjölhæfum umsækjandasem á gott með að umgangast ungt fólk og er tilbúinn til að taka þátt í mótun á fyrirkomulagi dreifnáms í A-Hún.Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf á uppeldissviði..

Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100% og ráðið er í starfið til eins árs til að byrja með.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní.2013

Nánari upplýsingar veita
Ingileif Oddsdóttir–ingileif@fnv.is–455-8000
Þorkell V. Þorsteinsson–keli@fnv.is–455-8000

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
v. Sæmundarhlíð
550 Sauðárkróki