Umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra breytinga á byggðarkvótakerfinu

Innviðaráðuneytið óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra breytinga á byggðakvótakerfinu með bréfi 8. maí síðastliðinn. Umsagnarbeiðnin var óvenju ítarleg og var meðal annars óskað eftir upplýsingum um reynslu á núverandi kerfi og sjónarmiðum varðandi mögulega útfærslu kerfisins til framtíðar. Umsögnin var unnin í samstarfi við hagaðila með reynslu af kerfinu, m.a. formann félags smábátaeigenda á Norðurlandi vestra. Hér má finna umsögn sveitarfélagsins sem send var ráðuneytinu þann 16. júní síðastliðinn.