Umsóknarfrestur vegna frístundakorta fyrir 2023

Umsóknarfrestur um frístundakort fyrir 2023 er til 31. janúar 2024.
 
 

Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 25 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár.

Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar 2024. Eftir það fellur réttur þess árs niður.

Hægt er að skila gögnum á skagastrond@skagastrond.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins. 

Tilgangur frístundakorta er að hvetja börn og unglinga til þátttöku í hvers konar íþrótta- og æskulýðsstarfi og að jafna möguleika foreldra til að börnum sé það mögulegt.

Réttur til frístundakorts gildir í eitt ár og tekur gildi 1. janúar ár hvert. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku ársins er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður. Ákvörðun um frístundakort er bundin afgreiðslu fjárhagsáætlunar hvert ár.

Umsóknarblað

Reglur um frístundakort