Umsóknir um námsstyrki

 

Námsstyrkir

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2014 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2013-2014 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins og er áður auglýstur umsóknarfrestur framlengdur til 1. apríl 2014.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni
  http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.

 

Aksturstyrkur vegna dreifnáms

Jafnframt er framlengdur til frestur til 1. apríl 2014 til að sækja um sérstakan stuðning vegna dreifnáms veturinn 2013-2014. Upplýsingar eru veittir á skrifstofu sveitarfélagsins.

 

Sveitarstjóri