Umsóknir um námsstyrki

 Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2015-2016 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 10. apríl 2016.

Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni
  http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.

Reglur um styrkina má finna hér.

Umsókn um styrk má finna hér.  

 

Sveitarstjóri