Ungir Skagstrendingar standa sig á skíðum

Ungir Skagstrendingar stóðu sig vel á skíðamóti í Tindastóli í gær og síðustu viku.  Þá var Bakarísmótið haldið. 

Hópur ungra Skagstrendinga tók þátt og stóðu þau sig öll með glæsibrag. 

Keppt var í svigi og stórsvigi og komust eftirfarandi Skagstrendingar á verðlaunapall.

  • Almar Atli Ólafsson lenti í 2. sæti í svigi og 3. sæti í stórsvigi (drengir 6 ára og yngri)
  • Ólafur Halldórsson lenti í 2. sæti í stórsvigi (drengir 6 ára og yngri)
  • Daði Snær Stefánsson lenti í 1. sæti  í stórsvigi (drengir 7 – 8 ára)
  • Dagur Freyr Róbertsson lenti í 3. sæti í stórsvigi (drengir 7 – 8 ára)
  • Jóhann Almar Reynisson lenti í 2. sæti í svigi (drengir 7 – 8 ára)
  • Harpa Hlín Ólafsdóttir lenti í 3. sæti í svigi og 3. sæti í stórsvigi (stúlkur 9 – 10 ára)
  • Páll Halldórsson lenti í 3. sæti í svigi (drengir 11 – 12 ára)