Varað við ljósabekkjanotkun fermingabarna

Fermingarátakið "Hættan er ljós" þar sem varað er við ljósabekkjanotkun fermingarbarna er að fara í gang. 

Átakið er eins og áður samvinnuverkefni Félags íslenskra húðlækna, Geislavarna ríkisins, Krabbameinsfélagsins, Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar. M.a. verða birtar auglýsingar í dagblöðum, á FaceBook og fleiri net/vefmiðlum.

Ýmsu fræðsluefni varðandi átakið er safnað á: krabb.is/ljos

Þetta er sjöunda árið sem farið er í fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“. Birtar verða auglýsingar í dagblöðum og á vefsíðum, m.a. Facebook, og fjallað um málið í fjölmiðlum.

Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mikið á síðustu áratugum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og aðrir forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að fara að tilmælum alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki. Nýlega hafa verið settar fram tillögur á norrænum vettvangi um að banna þeim sem eru yngri en átján ára að fara í ljós. Slíkt bann hefur þegar tekið gildi í nokkrum löndum, m.a. Skotlandi.

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu ár hefur dregið úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni. Leitað verður til presta landsins um að leggja málefninu lið, eins og undanfarin ár.

Nú er að koma út fræðslurit um sortuæxli. Krabbameinsfélagið gefur ritið út en höfundar eru læknarnir Bárður Sigurgeirsson og Jón Hjaltalín Ólafsson. 

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali  50 manns á ári með sortuæxli í húð, 60 með önnur húðæxli og um 225 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Á allra síðustu árum hefur heldur dregið úr tíðninni. Ár hvert deyja að meðaltali níu Íslendingar úr sortuæxlum í húð.