Verkefnastyrkir til menningarstarfs

Ein úthlutun á þessu ári

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

 

Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa eina úthlutun á árinu 2012, með umsóknarfresti til og með 15. mars.

 

Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

·         Fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar og lista.

·         Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.

·         Stuðla að nýsköpun og þróun í menningu og menningartengdri ferðaþjónustu.

·         Menningarstarfsemi styðji við ferðaþjónustu.

·         Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningarstarfi.

·         Verkefni sem leiða til samstarfs við önnur lönd á sviði menningar og lista.

·         Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

 

Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra.

 

Umsækjendum er bent á að kynna sér nánar Úthlutunarreglur 2012 á www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.

 

Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Í umsókninni skal m.a. vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.

 

Umsóknir skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545  Skagaströnd, eigi síðar en 15. mars 2012. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

 

Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.