Verkefnastyrkir til menningarstarfs

Aukaúthlutun 2013

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis við SSNV.

Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Til úthlutunar eru að hámarki um 5 milljónir króna. Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2013.

 

Umsækjendur skulu að öllu jöfnu vera einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra.

 

Menningarráð hefur ákveðið að þau menningarverkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

 

·         Verkefni með börnum og unglingum á öllu Norðurlandi vestra

·         Verkefni sem tengja ungt listafólk frá Norðurlandi vestra við heimabyggð

·         Verkefni sem leiða til samstarfs við aðra landshluta eða önnur lönd

 

Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.

 

Umsóknir skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545  Skagaströnd, eigi síðar en 16. september 2013. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

 

Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.