Viðtalstími fulltrúa í sveitarstjórn

Á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar sem fór fram 9. september s.l. var samþykkt að bjóða upp á reglubundna viðtalstíma fyrir íbúa með fulltrúum í sveitarstjórn. Það verður Eydís Inga Sigurjónsdóttir sem verður með næsta viðtalstíma og verður hann þriðjudaginn 17. nóvember 2026 milli kl. 16:00 og 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins  að Túnbraut 1-3.