Vinnumálastofnun á Skagaströnd vantar starfsmann

Vinnumálastofnun óskar eftir starfsmanni í ræstingar á skrifstofuhúsnæði stofnunarinnar á Skagaströnd.

Hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd er rekin Greiðslustofa Vinnumálastofnunar sem sér um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið og þjónustuskrifstofa fyrir Norðurland vestra

Leitað er að traustum starfsmanni sem er snyrtilegur, skipulagður og hefur áhuga á að skila góðu starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum SFR.

Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið liney.arnadottir@vmst.is fyrir 19. júlí. 

Frekari upplýsingar gefur Líney Árnadóttir forstöðukona í síma 455 4200 og á liney.arnadottir@vmst.is. 

Starfsemi Vinnumálastofnunar er hægt að kynna sér á www.vinnumalastofnun.is.