Vinnumálastofnun tekur öskudaginn hátíðlega

Starfsfólk Vinnumálastofnunar er einstaklega fjölhæft og skemmtilegt fólk og trú því tók það öskudaginn hátíðlega eins og hin börnin og klæddi sig upp í alls kyns búninga og gervi. Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum af þessu tilefni.

Hins vegar er ekkert nýtt að starfsfólkið geri sér dagamun. Nágrannar reka oft upp stór augu þegar eru einhvers konar þemadagar hjá Vinnumálastofnun. Þá eru til dæmis bleikir daga, húfu og hattadagar og svo framvegis.

Hvað sem öðru líður setur hið káta starfsfólk svip á samfélagið og fyrir það má þakka.