Vinnuskóli Skagastrandar 2017

  Vinnuskólinn.

Vinnuskóli Skagastrandar er fyrir nemendur, búsetta á Skagaströnd, sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Vinnuskóli Skagastrandar er starfræktur í 10 vikur:     Hann hefst þriðjudaginn 6. júní og lýkur föstudaginn 4. ágúst.               Skráning í vinnuskólann er á skrifstofu sveitarfélagsins

Vinnutími

Daglegur vinnutími  10. bekkjar er frá 09:00-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum til 12:00. Daglegur vinnutími  8. og 9.bekkja er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga ekki er unnið á föstudögum.

Laun

Laun eru greidd út hálfsmánaðarlega.

Nemendur 10. bekkjar þurfa að skila skattkorti og greiða félagsgjöld og lífeyrissjóð.

Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.

·         Nemendur 10. bekkjar             732 kr./klst.

·         Nemendur 9. bekkjar               581 kr./klst.

·         Nemendur 8. bekkjar               488 kr./klst.

Laun eru lögð inn á bankareikning sem verður að vera á nafni og kennitölu viðkomandi unglings. Nemendur vinnuskóla eru tryggðir launþegatryggingu sem tryggir þá í vinnu og á beinni leið til og frá vinnu.

Starfsreglur

Reglur Vinnuskólans eru einfaldar og skýrar.

·         Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.

·         Sýna skal flokkstjórum kurteisi sem og öllum öðrum.

·         Einelti er ekki liðið.

·         Reykingar eru stranglega bannaðar.

·         Símar eru ekki bannaðir en ætlast er til að notkun sé í hófi.

Fatnaður

Nemendur Vinnuskóla skulu leggja sér til allan vinnufatnað en Vinnuskólinn leggur til Öryggisvesti á ALLA og aðrar persónuhlífar þar sem við á. Öllum er ráðlagt að merkja fatnað,skó og stígvél.

Engin ábyrgð er tekin á fötum eða öðrum hlutum sem nemendur taka með sér á vinnustað.

Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun að undangenginni áminningu.

Símar Vinnuskólans

Áhaldahús: 4522607                                   Árni Geir: 8614267

Netfang Vinnuskólans er ahaldahus@skagastrond.is