Vinnuskóli Skagastrandar 2019

 

Vinnuskóli Skagastrandar er fyrir nemendur, búsetta á Skagaströnd, sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Vinnuskóli Skagastrandar er starfræktur í 10 vikur:     

Hann hefst þriðjudaginn 4. júní og lýkur föstudaginn 2. ágúst.               

Skráning í vinnuskólann er á skrifstofu sveitarfélagsins eða í gegnum rafræna umsókn sem nálgast má hér. 

Vinnutími

Daglegur vinnutími  10. bekkjar er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum til 12:00.

Daglegur vinnutími  8. og 9. bekkja er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga ekki er unnið á föstudögum.

Laun

Laun eru greidd út hálfsmánaðarlega og verða launakjör birt síðar.

Nemendur 10. bekkjar þurfa að skila skattkorti og greiða félagsgjöld og lífeyrissjóð.

Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.

Laun eru lögð inn á bankareikning sem verður að vera á nafni og kennitölu viðkomandi unglings.

Nemendur vinnuskóla eru tryggðir launþegatryggingu sem tryggir þá í vinnu og á beinni leið til og frá vinnu.

Starfsreglur

Reglur Vinnuskólans eru einfaldar og skýrar.

·         Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.

·         Sýna skal flokkstjórum kurteisi sem og öllum öðrum.

·         Einelti er ekki liðið.

·         Reykingar eru stranglega bannaðar.

·         Símar eru ekki bannaðir en ætlast er til að notkun sé í hófi.

Fatnaður

Nemendur Vinnuskóla skulu leggja sér til allan vinnufatnað en Vinnuskólinn leggur til öryggisvesti á ALLA og aðrar persónuhlífar þar sem við á.

Öllum er ráðlagt að merkja fatnað,skó og stígvél.

Engin ábyrgð er tekin á fötum eða öðrum hlutum sem nemendur taka með sér á vinnustað.

Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun að undangenginni áminningu.

Símar Vinnuskólans

Áhaldahús: 4522607                                   Árni Geir: 8614267

Netfang Vinnuskólans er ahaldahus@skagastrond.is