Menningar- og samstöðutónleikar fara fram fimmtudaginn 19. nóvember 2026. Tónleikarnir verða í Hólaneskirkju og hefjast kl. 20:00.
Kirkjukór Hólaneskirkju kemur fram ásamt hljómsveit. Kvartett, munnhörpuleikari og einsöngvarar verða einnig með atriði.
Ekkert kostar inn en hægt að leggja fram frjáls framlög þar sem allur ágóði rennur til Bergrósar Hafsteinsdóttur, sem nú heyir hetjulega baráttu við krabbamein. Enginn posi verður á staðnum. Eftir tónleika verður boðið uppá upprúllaðar pönnukökur í boði samstarfskvenna Bergrósar á Barnabóli.