Síldaverksmiðjan í byggingu árin 1945 - 1947.  Myndin hefur líklega verið tekin af efstu hæð vinnupalls  sem var utan á stóra verksmiðjuskorsteininum.  Þrærnar sem eru lengst frá á myndinni hafa verið brotnar niður  og fjarlægðar og sama má segja um rörið sem á myndinni liggur  frá verksmiðjunni að mjölskemmunni sem er utan myndar.  Eftir þessu röri var mjölinu blásið heim í skemmuna þar sem það  var sekkjað og geymt þar til það var selt og sent í burtu.  Eins og sjá má á myndinni var hafnargarðurinn - Útgarður- ekki  kominn nema að litlu leiti.   |