Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar  kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun.  Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira  söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra.  Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991),  Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson.  Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið  kringum 1990.   |