Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott  og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð  um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður  að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og  komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum  á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.   Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson  til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.  |