Unglingahljómsveit leikur á skemmtun í Tunnunnni.  Líklega er þetta hljómsveit sem kallaðist Tíglar.  Frá vinstri: Steindór Haraldsson á bassa, Reynir Sigurðsson á trommur,  Bergur Þórðarson á gítar, Hjörtur Guðbjartsson á gítar.  Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968. Til gamans má geta þess að þessar fallegu peysur voru prjónaðar af  Jóhönnu hans Adda (Jóhanna Sigurjónsdóttir d. 15.12.1990) eins og  hún var alltaf kölluð. Allar hljómsveitir á þessum tíma voru í hljómsveitar  búning og þetta var okkar.  Þetta voru gífurlega þétt prjónaðar flíkur og lítil loftræsting í gömlu  tunnunni þess vegna átti ég í vandræðum með að komast úr peysunni  er heim kom. Litirnir höfðu fært sig úr peysunni yfir á búkinn og leit  skinnið  út  líkt og að ég væri með nýtt tattú  á skrokknum.  En þetta fór af með góðum skammti af grænsápu.  (Sent inn af Reyni Sigurðssyni frá Þórsmörk)  |