Guðmundur Jóhannesson lést hinn 17. apríl síðastliðinn og  verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju fimmtudaginn 3. maí klukkan 14:00.
  Uppgjöf er orð sem ekki var til í orðabók Guðmundar Jóhannessonar.  Framsækni, stórhugur og dugnaður voru aftur á móti á fremstu síðu í  þeirri bók. Hann kom að stofnun margra fyrirtækja og stofnana sem til  framfara horfðu á Skagaströnd og lagði hart að sér til að koma þeim á fót.   Guðmundur var maður sem allir vildu hafa í sínu liði  því þó  hann væri  ekki hávær á fundum og mannamótum vann hann heill og ótrauður að  þeim málum sem hann trúði á.  Þegar hann fékk svo áfall eftir miðjan aldur og lamaðist að hluta kom  uppgjöf ekki til greina heldur þjálfaði hann sig og fann leiðir til að gera  ótrúlegustu hluti, sem menn í hans stöðu áttu engan veginn að geta gert.  Nú, þegar þessi aldni höfðingi gengur glaður og óhaltur inn í ljósið, er hugur  okkar hjá aðstendendum sem kveðja Guðmund með söknuði. 
   |