Nýsköpun á Skagaströnd – Atwork
Sveitarfélagið Skagaströnd leggur áherslu á að styðja frumkvöðlastarf og nýsköpun í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið auglýsir því eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar. Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum eða verkefnum sem vinna að nýjum hugmyndum, þróun eða frumkvöðlastarfi á Skagaströnd. Veittir verða styrkir til sex aðila.
Styrkurinn felur í sér aðgang að aðstöðu hjá Atwork í 3-12 mánuði eftir þörfum:
Markmið styrkjanna er að efla nýsköpun, skapa verðmæti og styrkja atvinnulíf á Skagaströnd.
Fylgigögn með umsókn
Með umsókn skulu fylgja:
- stutt lýsing á verkefni (markmið, hugmynd og ávinningur)
- áætlun um framkvæmd og tímaramma
- upplýsingar um umsækjanda/teymi (bakgrunnur og reynsla)
- önnur gögn sem umsækjandi telur styðja við umsóknina
Mat á umsóknum
Sveitarstjórn Skagastrandar fer yfir umsóknir og velur úr þeim verkefni sem hljóta styrk.
Við mat á umsóknum verður meðal annars horft til:
- nýsköpunargildis og frumleika hugmyndar
- framkvæmanleika og skýrleika áætlunar
- áhrifa á atvinnulíf og samfélag á Skagaströnd
- getu umsækjanda til að þróa og hrinda verkefninu í framkvæmd
Umsóknir
Öllum umsóknum verður svarað.