Fimmtudaginn 18. júní hélt kirkjukór Hólaneskirkju sumartónleika. Frábær mæting var á tónleikana og var lagaval fjölbreytt og skemmtilegt. Arna Rún Arnarsdóttir, Ástrós Elísdóttir, Einar Haukur Arason, Halldór Gunnar Ólafsson, Lilja Guðlaug Ingólfsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Sóley Sif Jónsdóttir fluttu einsöng. Þá spilaði Sigurjón Ýmir Alexson á gítar og Ísak Andri Jónsson á Bassa. Heppnuðust tónleikarnir einkar vel undir góðri stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur en þess má geta að hún hefur nú stjórnað kórnum í 20 ár. Það er ekki sjálfsagt að halda úti svona öflugu kórstarfi í 450 manna sveitarfélagi en það gefur samfélaginu okkar svo sannarlega lit.