Skipulagsauglýsing: Deiliskipulag við Hólanes

 

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingu á eftirfarandi deiliskipulagi:

Deiliskipulag við Hólanes

Breytingin fjallar um áform vegna uppbyggingar sjóbaða við Hólanes ásamt breytingum á lóðamörkum fyrir Fjörubraut 6 og 8. Skilgreind er aðkoma og bílastæði fyrir sjóböð og breytingar á stígakerfi.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3, frá og með fimmtudeginum 9. desember 2021 til 21. janúar 2022 og er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is. Opið hús verður um tillöguna 13. desember nk. frá kl.10:00-12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 21. janúar 2022.

Skila skal athugasemdum á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar að Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd.

Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.

Tillögu að breytingu á deiliskipulagi má nálgast hér.

Uppdrátt má nálgast hér.