22.06.2016
Kosning til embættis forseta Íslands
verður í íþróttahúsinu á Skagaströnd
laugardaginn 25. júní 2016.
Kjörstaður er opinn frá kl. 10 – 22.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Skagaströnd.
20.06.2016
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 22. júní 2016
kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
1. Kjörskrá vegna forsetakosninga 25. júní 2016
2. Grunnskóli
a. Rýmisathugun fyrir Höfðaskóla
b. Sjálfsmatsskýrsla skólans vor 2016
c. Skýrsla skólastjóra um starfið
d. Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis, dags. 26. maí 2016
e. Svarbréf skólastjóra dags. 15. júní 2016
3. Framkvæmdir og fjárfestingar 2016
a. Sundlaug – heitur pottur
b. Aðrar framkvæmdir 2016
4. Bókhaldskerfi sveitarfélagsins
5. Bréf:
a. Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 8. júní 2016
b. Hrafnhildar Sigurðardóttur, dags. 16. júní 2016
c. Varasjóðs húsnæðismála, dags. 13. júní 2016
d. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. júní 2016
e. Heimilisiðnaðarsafnsins, dags. 17. maí 2016
f. Thorp, dags. í maí 2016
g. Tónlistarskólans á Akureyri, dags. 12. maí 2016
6. Fundargerðir:
a. Stjórnar Norðurár bs, 7.03.2016
b. Stjórnar Norðurár bs. 25.04.2016
c. Stjórnar Norðurár bs. 19.05.2016
d. Stjórnar Norðurár bs. 26.05.2016
e. Aðalfundar Norðurár bs, 19.05.2016
f. Aðalfundar Farskólans, 11.05.2016
g. Vorfundar Farskólans, 11.05.2016
h. Stjórnar SSNV, 10.05.2016
i. Stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 17.05.2016
j. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 17.05.2016
k. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 29.04.2016
l. Tómstunda- og menningarmálanefndar, 26.04.2016
m. Tómstunda- og menningarmálanefndar, 6.05.2016
n. Tómstunda- og menningarmálanefndar, 17.05.2016
o. Tómstunda- og menningarmálanefndar, 7.06.2016
7. Önnur mál
Sveitarstjóri
16.06.2016
Skógræktarfólk.
Þessi mynd var tekin í júní 1992 af hópi krakka og leiðbeinenda eftir
vel heppnaðan gróðursetningardag í hlíðum Spákonufells.
Í fremstu röð frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir,
Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes V. Grétarsson, Jón Örn Stefánsson,
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og óþekkt.
Í annarri röð frá vinstri: Gestur Arnarson, óþekktur, Sigurður Berndsen,
Árni Max Haraldsson, Ástmar Sigurjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson,
Ragna Gunarsdóttir, óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Ýr Rúnarsdóttir.
Aftast eru frá vinstri: Guðjón Magnússon leiðbeinandi
og Kristján Gunnar Guðmundsson.
Það er gaman fyrir þetta fólk að líta yfir svæðið í dag og sjá góðan
árangur starfs síns í plöntum sem nú eru um tveggja metra há tré.
14.06.2016
Potluck @ Nes Listamiðstöð
View this email in your browser
Picnic Potluck á morgun með
Nes listamenn!
miðvikudagur 15th júní
12.30 – 14.00
Come celebrate this gott veður
and share lunch with us!
We will be outside the back
of the studio on the grass
overlooking the sea!
How nice....
Allir velkomnir!
Copyright © 2015 Nes Listamiðstöð Ehf. All rights reserved.
You are receiving this email because you have subscribed to our newsletter or given us your email so we can keep in touch :) How nice!
Our mailing address is:
Nes Artist Residency
Fjörubraut 8
545 Skagaströnd
http:\\neslist.is
unsubscribe from this list update subscription preferences
This email was sent to fulltrui@skagastrond.is
why did I get this? unsubscribe from this list update subscription preferences
Nes Listamiðstöð Ehf. · Fjörubraut 8 · Skagaströnd 545 · Iceland
14.06.2016
Kjörskrá
vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016
liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 15. júní til kjördags.
Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu
lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 4. júní 2016.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Kjörskrá%2025%20júní%202016.pdf
Sveitarstjóri
14.06.2016
Kjörskrá
vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016
liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 15. júní til kjördags.
Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu
lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 4. júní 2016.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
Sveitarstjóri
10.06.2016
Hestaskoðun.
Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli
hrossabóndann Gunnar Sveinsson.
Á þessari mynd eru komnar á bak þær Jenný Lind Sigurjónsdóttir aftast,
Anna María Magnúsdóttir í miðið og Eydís Inga Sigurjónsdóttir fremst en
Gunnar heldur í hestinn.
Ragnar Gunnarsson er í skræpóttri úlpu en Elva Ösp Gunnarsdóttir fylgist
með til hægri. Þar standa líka starfsstúlkurnar Katrín Sigurjónsdóttir fjær
og Bára Þorvaldsdóttir nær.
Barnið sem Bára leiðir er óþekkt
08.06.2016
Vatnslaust verður í dag (08. júní) í Skeifunni og efri hluta Bogabrautar á milli 14 og 15.
07.06.2016
Til íbúa Austur-Húnavatnssýslu
USAH hefur staðið árlega að útgáfu héraðsritsins Húnavöku síðan 1961. Ritið er vettvangur húnvetnskrar sögu og menningar sem við höfum verið mjög stolt af. Sala bókarinnar undanfarin ár hefur þó farið minnkandi. Á þingi USAH í mars 2016 var ákveðið að gera tilraun til að auka dreifingu og lestur ritsins og verður ritið því sent inn á hvert heimili í sýslunni með valgreiðsluseðli í von um að með þessu móti væri hægt að lækka verð, auka vægi ritsins og fjölga lesendum þess.
Með von um góðar viðtökur
Stjórn USAH
03.06.2016
Sjómannadagur 1966.
Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Skagaströnd frá
árinu 1939.
Fastur liður í hátíðahöldunum er kappróður þar sem sjómenn og aðrir
reyna með sér. Fyrst voru notaðar skektur sem menn áttu til fiskveiða við
kappróðurinn en árið 1948 voru í fyrsta sinn notaðir sérsmíðaðir
kappróðrarbátar - Gustur og Gola - sem voru smíðaðir á Akureyri í
bátastöð Kristjáns Nóa Kristjánssonar.
Á hverju ári síðan hefur verið keppt á Gusti og Golu. Bátarnir eru nú í
umsjón og geymslu slysavarnadeildarinnar Strönd á Skagaströnd.
(Heimild: "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár" eftir
Lárus Ægi Guðmundsson, útg. 2009)
Á þessari mynd frá sjómannadegi 1966 er sigursveit í kappróðri karla að
taka við verðlaunapeningum sínum á planinu við Hafnarhúsið.
Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Sigmar Jóhannesson
(d. 20.4.2000),
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), sem er að hengja pening á sjálfan sig
því hann var kynnir dagsins auk þess að vera stýrimaður þessarar sigursveitar,
Eiður Hilmarsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995),
Viggó Brynjólfsson og Gunnar Sveinsson. Börnin eru óþekkt.
Myndin er úr safni Jóns Pálssonar og Bjarkar Axelsdóttur.