14.11.2016
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 21. nóvember 2016 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
1. Álagningastuðlar útsvars og fasteignagjalda 2017
2. Fjárhagsáætlun 2017-2020
3. Félagslegar íbúðir
a. Umsóknir
b. Sala íbúða
4. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2016/2017
5. Málefni fatlaðs fólks
a. Samráðshóps um málefni fatlaðra, 12.10.2016
b. Bréf til velferðarráðherra, dags. 12.10.2016
c. Tillaga um samstarf um málefni fatlaðs fólks
d. Skipting á hallarekstri 2016
6. Umsagnir um rekstrarleyfi fyrir gistingu
7. Bréf:
a. KSNV, dags. 3. nóvember 2016
b. Grunnskólakennara, dags. 4.-7. nóvember 2016
c. Innanríkisráðuneytisins, dags. 3. október 2016
d. Innanríkisráðuneytisins, dags. 8. nóvember 2016
e. Mannvirkjastofnunar, dags. 7. nóvember 2016
8. Fundargerðir:
a. Stjórnar SSNV, 20.10.2016
b. Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 23.09.2016
c. Stjórnar Hafnasambands Íslands, 12.10.2013
d. Stjórnar Sambands ísl sveitarfélaga, 28.10.2016
9. Önnur mál
Sveitarstjóri
11.11.2016
Árgangur 1975
Þessi mynd sýnir stærstan hluta bekkjar í Höfðaskóla með
krökkum fæddum 1975.
Frá vinstri á myndinni eru: Jóhannes Óskarsson, Guðmundur Henry Stefánsson,
Þröstur Árnason, Börkur Árnason, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna),
Heiðrún Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir,
Hafdís Ásgeirsdóttir, Soffía Lárusdóttir og Áslaug Jóhannsdóttir.
Hugsanlega eru nöfn tvíburanna Áslaugar og Vilborgar ekki rétt þ.e. ekki
rétt nafn við rétta stúlku en erfitt var að þekkja þær í sundur.
Mynd var sennilega tekin árið 1989 eða 1990.
09.11.2016
Í gær þriðjudaginn 8. nóv. afhentu kennarar á Skagaströnd Magnúsi Jónssyni sveitarstjóra undirskriftir 3142 kennara á landinu, þar sem þeir fara fram á kjarabætur og bætt starfsskilyrði. Samskonar listar hafa verið afhentir víða um land. Einnig var yfirlýsing frá KSNV afhent þar sem lýst er þungum áhyggjum af skólamálum á landinu.
Kennarar hafa í tvígang fellt kjarasamning á þessu ári og ljóst er að enn ber mikið á milli samningsaðila, þar sem deilunni var vísað til Ríkissáttasemjara mánudaginn 7. nóv.
08.11.2016
Ekki tókst að tengja vatnsveitu í útbænum í dag 8.nóv, eins og vonir stóðu til. Því verður vatnslaust á morgun, 9.nóv. frá hádegi og fram eftir degi.
08.11.2016
AKSTUR
SSNV óskar eftir verktaka til að aka leið 84 Skagaströnd – Blönduós – Skagaströnd.
Sjá nánar tengil á netinu http://www.straeto.is/media/english/Leid-84.pdf
Tímatafla er með eftirfarandi hætti:
Frá Skagaströnd
Mánudaga - föstudaga
Kl. 11:59
Kl. 18:04
Kl. 21:13
Laugardaga
Kl. 12.43
Kl. 18:04
Sunnu – og helgidaga
Kl. 11:59
Kl. 18:04
Kl. 21:13
Frá Blönduósi
Mánudaga - föstudaga
Kl. 13:16
Kl.18:38
Kl. 21:47
Laugardaga
Kl. 13:16
Kl. 18:38
Sunnu- og helgidaga
Kl. 13:16
Kl. 18:38
Kl. 21:47
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að hafa sambandi við Björn Líndal Traustason framkvæmdastjóra SSNV í síma 864-8946 í síðasta lagi föstudaginn 11. nóvember.
07.11.2016
Vegna tenginga í vatnsveitu verður vatnslaust í útbæ vestan Lækjarbakka frá kl 14 í dag þriðjudag og fram eftir degi.
Vatnsveiturstjóri
07.11.2016
menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg
miðvikudaginn 9. nóvember 2016 kl. 18:00
Skv. hefð er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann.
Af þessu tilefni mun Höfðaskóli standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg miðvikudaginn 9. nóvember n.k.
Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á kökuhlaðborð að lokinni dagskrá.
Frítt er á dagskrána en aðgangur að kökuhlaðborði er:
1000 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur
500 kr. fyrir grunnskólanemendur
frítt fyrir þriðja barn frá heimili
frítt fyrir leikskólanemendur
Vonumst til að sjá sem flesta í hátíðarskapi.
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla.
04.11.2016
Hér bregða þeir á leik, vinirnir Sigurður Bjarnason og Lárus Ægir Guðmundsson. Báðir hafa þeir átt bú sitt og ból á Skagaströnd, eru miklir Skagstrendingar og félagar og verið samstíga um margt.
Lárus Ægir fyllir sjötíu árin í dag, 4. nóvember og eru honum færðar innilegar afmæliskveðjur á þeim tímamótum.
Þessa mynd af þeim félögum tók Þórður Jónsson 1963, fyrir utan gamla útibúið sem stóð nokkurn veginn þar sem gangbrautin er yfir Oddagötu milli skólalóðar og Olís skálans. Útibúið var vernslunarútibú Kaupfélags Skagstrendinga (KAST).
04.11.2016
Fyrirhugaðir eru tónleikar í tilefni af að eitt hundrað ár eru liðin frá fæðingu Jónasar Tryggvasonar. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur lög eftir Jónas og frumflutt verða tvö ný lög við ljóð Jónasar. Þá mun Ingi Heiðmar Jónsson flytja minningabrot úr æfi Jónasar. Einnig mun Valgarður Hilmarsson fara yfir sögu Tónlistarskóla A-Hún og tónlistarfólk sem hóf nám við skólann og hafa helgað sig tónlist að meira eða minna leyti, svo og núverandi nemendur skólans flytja tónlist ásamt kennurum skólans.
Hátíðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands- vestra.
Tónleikarnir verða í Blönduóskirkju kl 15oo laugardaginn 12 nóv. næstkomandi að lokinni dagskrá þar verður boðið upp á kaffi og meiri tónlist í boði Tónlistarskólans í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Fyrir hönd Tónlistarskólans og undirbúningsnefndar.
Skarphéðinn H Einarsson.
28.10.2016
Ísberg Ís
Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá
1908-2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir
svo um þetta skip:
" Ísberg. Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt
var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en
í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut.
Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð".
Myndina tók Árni Geir Ingvarsson þegar verið var að
lesta skipið í Skagastrandarhöfn fyrir síðustu för þess.
Dagblaðið DV sagði frá sjóslysinu á eftirfarandi
hátt 2. maí 1983:
"Mannbjörg varð er nýasta skip íslenska kaupskipaflotans,
Isberg IS, sökk eftir árekstur um 70 sjómílur
austur af Grimsby síðdegis á laugardag."
Atburðurinn átti sér stað um
klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt
flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg
á miðju skipi bakborðsmegin. Isberg
fór á hliðina á nokkrum mínútum og
var sokkið eftir tæpa klukkustund.
Skipverjarnir fimm komust í björgunarbát
og var bjargað upp í þýska
skipið, sem var tiltölulega lítið laskað.
Skipverjar voru fluttir til Grimsby og
komu síðan til landsins í nótt.
Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar
Árnason. Að hans sögn var mikil þoka
yfir þegar atburðurinn átti sér stað og
skyggni aðeins um 300 metrar. Áreksturinn
gerðist mjög snöggt, en skipstjóri
Isbergs hafði þó séð hvað verða
vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja
og reyna að forða okkur og síðan
stoppuðum við og gáfum þokumerki.
Eg prófaði að kalla til þeirra á örbylgjustöð
en það gekk ekkert og næsta
skref var bara að forða sér því skipið
var oltið. Það lagðist á hliðina á 3 til 5
mínútum enda fór þýska skipið alla
leið inn í lest," sagði skipstjórinn, er
DV ræddi við hann við heimkomuna í
nótt.
Isberg er 360 tonna frystiskip sem
var keypt frá Noregi og kom fyrst til
landsins fyrir tíu dögum. Það var
byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt.
Eigandi þess var OK h/f á Isafirði.
Þetta var fyrsta ferð þess frá Islandi.
Skipið var á leiðinni frá Grimsby til
Cuxhaven með um 200 tonn af frystum
fiski er áreksturinn varð. Tilla, sem er
um 1000 tonna skip, var hins vegar á
leiðinni frá Þýskalandi til Bretlands.
ÓEF