Vetur gerir vart við sig

"Eins og hvítt lín kom fyrsti snjórinn.... " um helgina. Það er fallegt um að litast þegar hvít mjöllin leggst yfir og geislar sólar glitra í frostinu. Þótt verktakar og starfsmenn Höfðahrepps hafi unnið að því að hreinsa snjó af götum og gönguleiðum er rétt er að huga að góðum vetrarútbúnaði bæði fyrir fólk og farartæki.