Auglýsing um útboð í Skagastrandahöfn

Hafnarsjóður sveitarfélagsins Skagastrandar óskar eftir tilboðum í lengingu Miðgarðs, harðviðarbryggju. Helstu magntölur: Jarðvinna, gröftur, fylling og grjótvörn Steypa landvegg bryggju um 41 m. Rekstur brygjustaura, 28 stk. Byggja harðviðarbryggju um 320 m² Lagnir fyrir vatn og rafmagn Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. desember 2013. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglingastofnunar Íslands, Vesturvör 2 í Kópavogi og hjá sveitarfélaginu Skagaströnd, Túnbraut 1-3 á Skagaströnd frá og með þriðjudeginum 2. júlí 2013, gegn 5.000 kr. greiðslu. Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtudaginn 18. júlí 2013 kl. 11.00.

Opnunartími skrifstofu

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir breyttan opnunartíma vegna sumarfría. Í júlí verður skrifstofa sveitarfélagsins opin frá 10:00-14:00 alla virka daga Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Marska setur heimsmet Á heimilissýningu 1986 í Laugardalshöll settu starfsmenn Marska á Skagaströnd heimsmet. Þeir bökuðu stærstu sjávarréttapizzu í heimi og var metið staðfest af Örnólfi Thorlacius fulltrúa Heimsmetabókar Guinnes á Íslandi. Pizzan var um 10 fermetrar og eftir að hún hafði verið bökuð smökkuðu á henni um 6.800 manns. Steindór R. Haraldsson, sem var framleiðslustjóri Marska, áætlar að hægt hefði verið að gefa 20.000 manns að smakka því skammtarnir sem gefnir voru tóku um þriðjung af bökunni allri. Á þessarri mynd sér í bakið á Ragnari frá Ragnarsbakaríi en hann bjó til botninn í pizzuna og forbakaði hann. Steindór fylgist með aðstoðarmönnum sínum úr kokkalandsliðinu dreifa álegginu jafnt yfir botninn. Rækja og skelfiskur voru uppistaðan í álegginu ásamt sósu og fleiru sem Steindór útbjó. Eftir því sem best er vitað er þetta eina heimsmetið sem Skagstrendingar eiga.

Skiptibókamarkaður á Skagaströnd

Nýjung í Djásnum og dúlleríi – Skiptibókamarkaður Þú getur komið með gamla bók að heiman og valið þér „nýja“ í staðinn hjá okkur. Einnig eru notaðar bækur og tímarit til sölu á vægu verði. Verið velkomin í Djásn og dúllerí þar er alltaf heitt á könnunni og gott að sitja í gömlu grænu stólunum og glugga í bók. Alla daga i sumar verður opið frá 14:00- 18:00

Mín Sýn - Myndlistasýning í Kaffi Bjarmanesi

Sunnudaginn 30. júní kl 13.00 opna ég myndlistasýninguna Mín Sýn í Kaffi Bjarmanesi á Skagaströnd. Sýningin er 14 olíumálverk, en hluti þeirra eru samspil myndverks, ljóðs og tónlistar. Sýningargestir fá mp3 spilara ( 4 spilarar) þar sem hægt er að hlusta á flutning ljóða/laga. Mynd – ljóð – lag: · Borgin Lag : Katie Melua. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir. · Ljósið Lag : Rúnar Þór. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir. · Farinn Lag : Emeli Sande. Texti : Herdís Þ. Jakobsdóttir. · Dagar Lag : GCD. Texti: Herdís Þ. Jakobsdóttir · Spegilinn Lag : Bubbi Morthens. Texti Herdís Þ. Jakobsdóttir. Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sáu um allan tónlistaflutning og upptökur. Herdís Þ. Jakobsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir syngja ljóðin/lögin. Sýningin er styrkt af minningarsjóðinum um hjónin frá Garði og Vindhæli. Ég býð ykkur öll velkomin á sýninguna sem stendur til 31. júlí nk. Herdís Þ. Jakobsdóttir.

Vatnstruflanir

Vegna veituframkvæmda má búast við truflunum um skemmri tíma á rekstri vatnsveitunnar og að vatnslaust geti orðið um stund þegar þannig stendur á. Ef fyrirséð er að loka þurfi fyrir vatn um lengri tíma verður það auglýst sérstaklega. Íbúar eru beðnir um að taka truflunum á vatnsveitu af þolinmæði.

Aðalfundur Skógræktarfélags Skagastrandar

Aðalfundur Skógræktarfélags Skagastrandar verður haldinn fimmtudaginn 27. júní 2013, kl. 20:00 í FélagsheimilinFellsborg, rauða sal. # Venjuleg aðalfundarstörf Óskar Þór Ársælsson, skrúðgarðyrkjufræðingur, flytur stutt erindi um almenna umhirðu garða. # Ath . Félagaskrá Skógræktarfélagsins er komin til ára sinna og þarfnast uppfærslu. Þeir sem gjarnan vilja skrá sig í félagið en komast ekki á fundinn eru beðnir að senda póst á netfangið: kristinb@simnet.is eða pannug@simnet.is Félagsgjald fyrir 2013 hefur verið ákveðið 1000 kr. Allir velkomnir, stjórnin.

Opna Fiskmarkaðsmótið 2013

Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi var haldið á Háagerðisvelli, Skagaströnd, laugardaginn 22. júní sl. Mótið er fyrsti hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Alls tóku 35 keppendur þátt í mótinu. Veður var með ágætum og allar aðstæður til spilamennsku góðar. Úrslit urðu sem hér segir: Kvennaflokkur án forgjafar 1. Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 90 högg 2. Aldís Ósk Unnarsdóttir GSS 91 högg 3. Sigríður Eygló Unnarsdóttir GSS 95 högg Karlaflokkur án forgjafar 1. Brynjar Bjarkason GÓS 77 högg 2. Oddur Valsson GSS 79 högg 3. Arnar Geir Hjartarson GSS 82 högg Punktakeppni með forgjöf 1. Hafþór Smári Gylfason GSK 37 punktar 2. Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson GÓS 35 punktar 3. Einar Ágúst Gíslason GSS 34 punktar

Lokað fyrir vatn á þriðjudag

Vegna veituframkvæmda verður lokað fyrir vatn í hluta Skagastrandar þriðjudaginn 25. júní nk. kl 10.00 og fram eftir degi. Götur sem lokað verður fyrir eru: Túnbraut, Sunnuvegur, Suðurvegur, Sólarvegur, Vallarbraut, Fjörubraut og hluta Oddagötu. Einnig hús sunnan Fellsbrautar. Sveitarstjóri

Kaffi Bjarmanes á Skagaströnd er til leigu

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka Kaffi-og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd fyrir heilsárs starfsemi. Húsið er laust til afnota í byrjun september og í því er búnaður til reksturs kaffihúss. Með umsókn fylgi hugmyndir um nýtingu, rekstur og menningarlegt hlutverk hússins. Bjarmanes er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004,og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 15. júlí 2013. Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is Fyrir hönd sveitarstjórnar, 21. júní 2013. Sveitarstjóri