Laus staða við Höfðaskóla

Við Höfðaskóla er laus staða skólaliða, 75% starf. Vinnutími er frá kl. 9 til 16 virka daga. Starfið felur í sér þrif og gæslu nemenda. Umsóknarfrestur er til 16. október 2015. Nánari upplýsingar veita húsvörður og skólastjóri í síma 4522800 Skólastjóri.

Mynd vikunnar

Hjónin í Árnesi. Fritz H. Berndsen, sem byggði Árnes 1899 og bjó þar, situr hér við stofuborðið í Árnesi ásamt seinni konu sinni Jónínu J. Berndsen. Fritz leggur kapal en Jónína er með eitthvað á prjónunum. Enn má fara í heimsókn í Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd og er nú safn, og skoða m.a. ljósalampann sem sést á myndinni.

Mynd vikunnar

Fiskur um allt dekk ! . Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 - síðutogaranum - hafísvorið 1969. Verið er að láta trollið fara aftur eftir 20 - 30 tonna hal. Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) er á gilsinum lengst til vinstri og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) er við spili, Guðjón Jónsson er á forhleranum en í aðgerð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Viggó Maríasson (d. 30.7.1973) og Óskar Kristinsson, sem snýr baki í myndavélina. Maðurinn milli Viggós og Óskars er óþekktur.

Fyrirlestradagur á Skagaströnd

Laugardaginn 19. september kl. 13:30-16:30 verða haldnir fyrirlestrar í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í samvinnu við Rannsóknastofu í jafnréttisfræðum. Fyrirlestrarnir eru í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar, Gamla kaupfélagshúsinu, Einbúastíg 2 Erindi halda: 13:30-14:00: Páll Sigurðsson, prófessor emeritus í lögum, flytur erindið Tveir norðlenskir lögskýrendur – Lögbókarskýringar Páls lögmanns Vídalíns og Björns Jónssonar, bónda og fræðimanns á Skarðsá 14:00-14:30: Nanna Þorbjörg Lárusdóttir sagnfræðingur talar um Góðtemplarastúkurnar og áhrif mótandi orðræðu Jólafundur í Daníelsher í Hafnarfirði um miðja 20. öld 14:30-15:00 Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur heldur erindið Að halda friðinn.Um sáttanefndir í Húnavatnssýslu og störf þeirra á 19. öld. 15:00-15:30 Umræður og heitt á könnunni 15:30-16:10 Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur segir frá ömmu sinni í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna: Það var sól þann dag – um Súsönnu Margréti Gunnarsdóttur frá Norðurfirði á Ströndum (1926-2002). Súsanna Margrét með fjögur elstu börnin við heimili þeirra í Camp Knox-braggahverfinu 16:10 Umræður. Dagskrárlok eigi síðar en 16:30. Allir velkomnir

Kleinur --- Kleinur á morgun 17. sept

Nemendur í 7. bekk Höfðaskóla stefna á að fara í skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði núna í haust. Sem hluti af fjáröflun í tengslum við þá ferð munu þau koma saman ásamt foreldrum sínum og baka kleinur til að selja. Baksturinn mun fara fram seinnipartinn á fimmtudag og munu krakkarnir ganga í hús meðan birgðir endast og bjóða 1 kg á 3.000kr eða 1/2kg á 1.500. Þeir sem vilja tryggja sér kleinur geta lagt inn pöntun hjá Vigdísi í síma 891-7869. 7. bekkur Höfðaskóla

Læsi leggur grunninn að vegferð barnanna okkar.

Ágætu foreldrar/forráðamenn Umræðan um læsi íslenskra barna hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum, enda um mjög mikilvægan þátt í vegferð barnanna okkar að ræða. Sjá:http://www.menntamalaraduneyti.is/gottadlesa/ Öll þurfum við að kunna að lesa, allt byggir á góðri lestrarkunnáttu. Því er það að heimili og skóli þurfa að taka höndum saman og sinna lestrarnámi barnanna í sameiningu. Lestrarþjálfun er sameiginlegt verkefni okkar allra. Það er gömul saga og ný að æfingin skapar meistarann. Lestrarfærni næst ekki ef aldrei er lesið heima, ekki frekar en færni á hljóðfæri. Ef tónlistarnemandi æfir sig ekki heima, þá verða engar framfarir. Sömu sögu er að segja um lestrarfærni. Barn sem aldrei les heima, nær seint og illa framförum í lestri og það hefur mikið að segja varðandi gengi barnsins í námi almennt. Við í Höfðaskóla viljum beina þeim tilmælum til foreldra/forráðamanna að vera vakandi varðandi lestrarþjálfun barnanna sinna og sjá til þess að þau lesi upphátt heima. Þetta á ekki síður við eldri nemendur en þau yngri. Það má finna alls konar lestrarefni sem höfðar til barnanna. Þetta getur verið ánægjuleg samverustund fjölskyldu þar sem allir skiptast á að lesa upphátt fyrir hina og ræða efnið í kjölfarið. Það eykur lesskilning. Verum samtaka í þessu mikilvæga verkefni og höfum það að sameiginlegu markmiði að gera börnin okkar vel læs sem fyrst. Með góðri kveðju Vera Ósk Valgarðsdóttir Skólastjóri

Mynd vikunnar

Brosmild börn. Þessi brosmildu börn á myndinni eru: Árni Ólafur Sigurðsson lengst til vinstri með Adolf H. Berndsen systurson sinn í fanginu. Við hlið Árna situr Reynir Sigurðsson bróðir hans, með Laufey Berndsen á hnjánum. Lengst til hægri er svo Bergur Jón Þórðarson vinur þeirra. Myndin var tekin 1960- 1961. Myndin er úr safni Hjördísar Sigurðardóttur.

Dagur Höfðans 16. september

Dagur Höfðans Sveitarstjórn Skagastrandar ákvað að gera Dag íslenskrar náttúru sem verður haldinn hátíðlegur 16. september nk. að „Degi Höfðans“ Í tilefni af því verður efnt til gönguferðar um Höfðann 16. september kl 18.00. Lagt verður af stað frá Tjaldklauf og eru íbúar og aðrir hvattir til að mæta og eiga góða stund í gönguferð um náttúrperluna Spákonufellshöfða. Þeir sem ekki geta mætt í skipulagða göngu eru hvattir til að taka göngu um Höfðann við fyrsta tækifæri. Sveitarstjóri

Landburður af fiski á Skagaströnd

Veiðar hafa gengið ágætlega á Húnaflóa í sumar og góð veiði. Undanfarna daga hefur verið sérstaklega mikið um að vera á höfninni á Skagaströnd sem hófst með því að togarinn Arnar HU 1 kom inn til millilöndunar og 4. september og þá var landað úr honum um 443 tonnum af fiski sem að mestu var makríll og grálúða. Sunnudaginn 6. september komu svo þrír línubátar frá Vísi í Grindavík til löndunar. Fjölnir GK-657 landaði tæpum 70 tonnum og bæði Páll Jónsson GK-7 og Sighvatur GK-57 lönduðu hvor um sig um 83 tonnum. Mánudaginn 7. september landaði Saxhamar SH-50 rúmum 44 tonnum. Auk þessa lönduðu nokkrir smærri bátar um 30 tonnum. Afli línubáta var að mestu þorskur og ýsa. Samtals var landað um 754 tonnum á þessum fjórum dögum.

Allir velkomnir á fyrirlestradaga

Fyrirlestradagar á Skagaströnd verða laugardagana 12. og 19. september í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í samvinnu við Rannsóknastofu í jafnréttisfræðum. Fyrirlestrarnir verða í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar, Gamla kaupfélagshúsinu, Einbúastíg 2 á Skagaströnd. Laugardaginn 12. september, kl. 14-15: Annadís Greta Rúdolfsdóttir, lektor í aðferðafræði rannsókna við Háskóla Íslands, flytur fyrirlesturinn Óþekk(t)ar ömmur Gerð er grein fyrir ævi nútímakvennanna Fanneyjar Bjarnadóttur (1913-2008) og Svövu Sigurðardóttur (1914-2012). Báðar voru fæddar utan hjónabands og voru lágt settar í stigskiptu kerfi samfélagsins. Þær gegndu hlutverkum móður og eiginkonu en voru einnig kynverur og neytendur samtímamenn­ingar. Lífshlaup þeirra er sett í samhengi við hefðbundna hugmynda­fræði um hina „góðu móður” og hvernig þær hugmyndir hafa haft áhrif á afstöðu afkomenda til þeirra og þær minningar sem lifa um þær. Ruth J. Arelíusdóttir, Sandra B. Rúdólfsdóttir, Fanney Bjarnadóttir, Annadís Greta Rúdólfsdóttir, Svava Sigurðardóttir. Mynd frá 1984. Laugardaginn 19. september, kl. 13:30-16:20 verða fluttir fjórir fyrirlestrar: Páll Sigurðsson, prófessor emeritus, flytur erindið Tveir norðlenskir lögskýrendur – Lögbókarskýringar Páls lögmanns Vídalíns og Björns Jónssonar, bónda og fræðimanns á Skarðsá. Nanna Þorbjörg Lárusdóttir, sagnfræðingur, fjallar um Góðtemplarastúkurnar og áhrif mótandi orðræðu. Vilhelm Vilhelmsson, sagnfræðingur, heldur erindið Að halda friðinn. Um sáttanefndir í Húnavatnssýslu og störf þeirra á 19. öld. Súsanna Margrét Gestsdóttir, sagnfræðingur, segir frá ömmu sinni í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna: Það var sól þann dag – um Súsönnu Margréti Gunnarsdóttur frá Norðurfirði á Ströndum (1926-2002). Umræður, heitt verður á könnunni og allir velkomnir Háskóli Íslands