Mynd vikunnar

Handavinnusýning. Vorið 1987 héldu eldri borgara sýningu í Höfðaskóla á handavinnu sinn sem þau höfðu unnið yfir veturinn undir leiðsögn Guðrúnar Guðmundsdóttur sem þá sá um félagsstarf aldraðra á Skagaströnd. Í gegnum árin hefur reynst erfitt að fá karlmenn inni í félagsstarfið og þess vegna eru einungis konur á myndinni. Lengst til vinstri á myndinni er Guðrún Guðmundsdóttir leiðbeinandi og kaupkona þá Jóhanna Thorarensen ( d. 6.3.2004) frá Litla Bergi, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) frá Dagsbrún, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011) frá Garði, Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011) frá Ási, Laufey Sigurvinsdóttir ( 21.12.1994) frá Litla Bergi og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Allar bjuggu þessar konur á Skagaströnd með fjölskyldum sínum mestan hluta ævinnar og settu mark sitt á bæinn. Hrefna var nýlega orðin 100 ára þegar hún lést.

Draugasögukvöld

Draugasögukvöld Laugardaginn 30. nóv. klukkan 21:30 verður haldið draugasögukvöld í Spákonuhofinu á Skagaströnd. Sögurnar henta fyrir 14 ára og eldri en eru ekki fyrir viðkvæmar sálir. Gamlar og nýjar draugasögur sem gerst hafa í nágrenninu og víðar. Aðgangseyrir er krónur 500.- Ráðgert er svo að halda annað draugasögukvöld fyrir yngri kynslóðina í næstu viku, það verður auglýst síðar. Menningarfélagið Spákonuarfur

Jólaföndur í Höfðaskóla

Árlegur jólaföndurdagur foreldrafélagsins verður haldinn laugardaginn 30. nóvember frá kl. 13 – 16. Jólaföndrið er opið öllum sem vilja koma, endilega bjóðið ömmu og afa eða hverjum sem er með því hingað til hefur þetta verið frábær dagur þar sem fjölskyldan kemur saman, föndrar og hefur gaman af. Piparkökubaksturinn á Leikskólanum Barnabóli er sama dag, eins og undanfarin ár. Foreldrafélagið verður með ýmis konar jólaföndur til sölu á hóflegu verði og einnig verður hægt að kaupa kaffi, djús og kökur. Mjög gott er að hafa í huga að koma með skæri, límstifti, föndurliti, pensla og nálar ef fólk á. Vonumst til að sjá sem flesta í jólaskapi. Stjórn foreldrafélagsins

Björgunarsveitin Strönd 80 ára

Í tilefni af 80 ára afmæli björgunarsveitarinnar Strandar þann 22. næstkomandi verður opið hús í Bjarnabúð sunnudaginn 24. nóvember á milli 14:00 og 17:00. Klukkan 15:00 mun Lárus Ægir Guðmundsson færa sveitinni að gjöf ágrip af sögu sveitarinnar í 80 ár. Allir velkomnir, kaffi og léttar veitingar í boði. Stjórn björgunarsveitarinnar Strandar https://www.facebook.com/bjorgunarsveitin.strond?fref=ts

Mynd vikunnar

Veturinn 1994 -1995 var sérlega snjóþungur og illviðrasamur. Einkum átti þetta við um tímann frá jólum og fram í maí. Snjóþyngslin voru svo mikil að erfitt var að moka göturnar og á sumum þeirra var snjórinn látinn eiga sig og hann troðinn með snjótroðara og síðan óku bílarnir á ca tveggja metra þykkum sköflum. Í einu norð-austan óveðrinu í febrúar hlóðst svo mikil ísing á báta í höfninni að menn urðu að standa vaktina og moka af þeim. Í tilviki Hafrúnar Hu 12 tókst ekki að moka og berja ísinguna af nógu hratt þannig að hún sökk í höfninni. Hafrún var í eigu bræðranna Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir brugðust fljótt við og fengu sérfræðinga til að aðstoða sig við að ná Hafrúnu úr kafi. Myndin var einmitt tekin þegar báturnn var að koma upp eftir að lofthylkjum hafð verið raðað á hann til að lyfta honum upp í yfirborðið. Þá var hafist handa við að dæla sjó úr bátnum þar til hann fór að fljóta sjálfur. Þeir bræður voru ekki á því að gefa Hafrúnina upp á bátinn heldur endurbyggðu þeir og breyttu henni með glæsibrag og skiptu um vél og annað sem þurfti. Nokkrum árum seinna seldu þeir bátinn í burtu en nokkrum árum þar á eftir keyptu þeir Hafrúnina aftur og er hún enn gerð út frá Skagaströnd af Sigurjóni Guðbjartssyni eftir því sem kvótinn leyfir

Mynd vikunnar

Bryggjusmiðir Mörgum finnst gott að eiga lítinn bát til að geta sótt sér fisk í soðið. Allmargar jullur og smærri trillur eru því til á Skagaströnd en slíkir bátar þarfnast aðstöðu við hæfi eins og aðrir stærri bátar. Vorið 1993 gerðu trillu- og jullukarlar samning við sveitarstjórn um að fá að smíða flotbryggju fyrir báta sína og jafnframt um staðsetningu hennar í höfninni. Samningurinn fól í sér að sveitarfélagið skaffaði efni í bryggjuna en bátakarlarnir skyldu smíða hana og hjálpa til við að koma henni fyrir. Voru báðir aðilar ánægðir með samninginn. Fljótlega tók hópurinn á myndinni sig til og smíðaði tvær flotbryggjulengjur sem tengdar voru saman í eina bryggju þannig að það myndaðist viðlegupláss fyrir allmargar jullur. Var bryggjunni komið fyrir ofan við (norðan við) og í skjóli við smágarð. Reynslan af þessari bryggju var svo góð að nokkrum árum síðar lét sveitarfélagið byggja aðra eins og koma fyrir á sömu slóðum. Á þessari mynd eru hressir bátakarlar við nýsmíðaða flotbryggju - lengju 1993. Frá vinstri: Jóhann Sigurjónsson, Guðmundur Björnsson, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Þorvaldur Skaftason, Stefán Jósefsson, Árni Björn Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson. Á myndina vantar Ragnar Smára Ingvarsson og Ólaf Bernódusson sem tók þessa mynd. Þess má geta að nú 20 árum eftir smíðina eru bryggjurnar enn í fullri notkun yfir sumarmánuðina.

Breyting Aðalskipulags

Breyting á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 Lenging á sjóvörn við Bót Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti 16. október 2013 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að sjóvörn við Bót verður 150 m lengri en fram kemur í gildandi aðalskipulagi. Greinargerð með rökstuðningi er á uppdrætti dags. 16. október 2013 í mkv. 1:10.000, sjá heimasíðuna www.skagastrond.is hér Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til sveitarstjóra Skagastrandar. Sveitarstjóri Skagastrandar

Pub Quiz - Pub Quiz í Bjarmanesi

Pub Quiz verður föstudaginn 15. nóvember Kl. 22:00. Spyrlar eru: Anna María Magnúsdóttir Jenný Lind Sigurjónsdóttir Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdottir Vonumst til að sjá sem flesta

Ísland – Króatía á breiðtjaldi í Bjarmanesi

Föstudaginn 15. Nóvember. Stefnum á að sýna landsleik í fótbolta Ísland – Króatía á breiðtjaldi Og hefst leikurinn kl. 18:20.

Jólahlaðborð - Jólahlaðborð

Ef næg þátttaka fæst ætlum við Sibbi að sameina krafta okkar og halda jólahlaðborð 23. nóvember nk í Kaffi Bjarmanesi. Verð er 7.500 krónur á mann. Borðapantanir í síma 867-6701 fyrir fimmtudaginn 14. Nóvember. Athugið að við tökum aðeins 30 manns í sæti. Áslaug og Sibbi