Opinn fundur um sóknaráætlun

Opinn fundur Sóknaráætlun Norðurlands vestra Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð, miðvikudaginn 10. júní kl. 17:00. Þann 10. febrúar sl. var skrifað undir samning milli Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og ríkisins um Sóknaráætlun 2015-2019. Markmið Sóknaráætlunar er m.a. að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans og landsins alls. Samkvæmt samningi um Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2015-2019 skal marka stefnu landshlutans í menningarmálum, nýsköpun og atvinnuþróun, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilegri þróun svæðisins. Á fundinum í Menningarhúsinu Miðgarði verður fjallað um stöðu Norðurlands vestra í þessum málaflokkum og síðan unnið í hópum. Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í að móta stefnu og áherslur landshlutans. Á heimasíðu SSNV www.ssnv.is er að finna Samning um sóknaráætlun Norðurlands vestra 2015-2019. Verið velkomin. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Íbúafundur um umhverfismál

Íbúafundur um umhverfismál verður haldinn mánudaginn 1. júní nk. kl. 17.30 í félagsheimilinu Fellsborg. Efni fundarins er umhverfismál bæði almennt og með tilliti til Skagastrandar sérstaklega. Kynningar- og umræðuefni á fundinum: Plastmengun í hafi James Kennedy, sérfræðingur hjá BioPol/Hafró Flokkun og endurvinnsla úrgangs Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar ehf Umhverfis- og úrgangsmál á Skagaströnd Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Sumar. Verðlaunamynd úr ljósmyndakeppni 2010 tekin af Guðlaugu Grétarsdóttur. Myndin sýnir börn að sulla í sjónum í víkinni neðan við Lækjarbakka á góðum sumardegi. Vissan fyrir því að sumarið mun koma, hjálpar okkur að þrauka leiðinlegt tíðarfar í maí og gerir okkur enn ákveðnari í að njóta sumarsins - þegar það loksins kemur.

Þrifahönd á Skagaströnd

Ágætu Skagstrendingar! Nú vorar sem óðast og senn líður að sjómannadegi. Það er því kominn tími til að taka til hendinni og þrífa eftir veturinn. Laugardaginn 30. maí er skorað á íbúa að taka sig til og hreinsa bæði hjá sér og í sínu nánasta umhverfi. Endurvinnslustöðin verður opin kl 13.00 -17.00 og ekkert gjald tekið fyrir þann úrgang sem berst þennan dag. Fulltrúar í sveitarstjórn munu taka á móti þeim sem koma á endurvinnslustöðina kl 15.00-17.00 og bjóða upp á grillaðar pylsur eða annað góðgæti. Þeir sem ekki hafa búnað til flutninga geta óskað eftir kerruþjónustu hjá áhaldahúsi í síma 774 5427. Mánudaginn 1. júní verður haldinn íbúafundur um umhverfismál – Hann verður auglýstur sérstaklega. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Hafnargerð Þessi mynd var tekin af framkvæmdum við Skagastrandarhöfn 1934. Búið er að leggja veg á uppfyllingu út í Spákonufellsey en hún hefur verið brotin niður að hluta. Grjótið í uppfyllinguna var sprengt úr Höfðanum eins og þekkt er. Á myndinni er verið að vinna við að steypa varnarvegg vestan við veginn út á fyrirhugað hafnarsvæði. Það er áhugavert að bera þessa mynd saman við hvernig höfnin lítur út í dag. Myndin hefur líklega verið tekin af Einbúanum.

Skólaslit Höfðaskóla

Skólaslit Höfðaskóla verða á morgun föstudaginn 22. maí og hefjast kl. 18:00. Með góðri kveðju Vera Ósk Valgarðsdóttir, skólastjóri

Götusópun

Götusópun á Skagaströnd hefst í dag fimmtudaginn 21. maí og mun sópbíll vera við hreinsun gatna næstu 1-2 daga. Bíleigendur sem lagt hafa bílum sínum úti í götu eru beðnir að færa þá svo sópunin gagni betur og ekki verði eftir ósópaðir blettir. Sveitarstjóri

Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir sumarstörf námsmanna í samstarfi við Vinnumálastofnun. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli. Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna er til 22. maí n.k. Skráning í Vinnuskóla Skagastrandar fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins. Sérstök athygli er vakin á að störf í vinnuskóla verða einungis fyrir nemendur sem eru að ljúka 8., 9. og 10. bekk. Með tilvísun í reglugerð um vinnu barna og unglinga er einungis heimilt að ráða 13 ára og eldri til starfa í vinnuskólum. Því takmarkast ráðning í vinnuskóla við fyrrgreind aldursmörk. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar.

Fragtskipið Ísafold í ís norðan við Höfðann í júní 1915. Á þessum árum var komu fragtskipanna beðið með eftirvæntingu því með þeim barst vara til landsins sem beðið var eftir. Þess má geta að Eimskipafélag Íslands -"’Óskabarn þjóðarinnar" - var stofnað 1915 og var af mörgum talið risaskref fyrir Íslendinga í átt að sjálfstæði. Þessa mynd tók Evald Hemmert sem var kaupmaður á Skagaströnd og átti því hagsmuna að gæta í sambandi við es Ísafold sem flutti m.a. vörur í verslunina.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 13. maí 2015 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Ársreikningur 2014 (seinni umræða) Félags- og skólaþjónusta Fundargerð stjórnar 5. maí 2015 Ársreikningur 2014 Fræðslumál Umhverfismál Bréf: Verkefnisstjórnar um svæðisáætlun, 26. mars 2015 Sóknarnefndar Hólaneskirkju, 24. apríl 2015 Kvenfélagsins Einingar, 14. apríl 2015 Fundargerðir: Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 12.03.2015 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 29.04.2015 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 10.04.2015 Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 13.04.2015 Önnur mál Sveitarstjóri