Auglýsing um kjörskrá

Kjörskrá Kjörskrá fyrir Höfðahrepp vegna kosninga til Alþingis liggur frammi á skrifstofu Höfðahrepps til kjördags. Kjörskrá miðast við skráð lögheimili eins og það var samkvæmt þjóskrá fimm vikum fyrir kjördag og er því miðað við 7. apríl sl. Athugasemdum við kjörskrá skal skila á skrifstofu Höfðahrepps fyrir kjördag, 12. maí 2007. Skagaströnd, 29. apríl 2007 Sveitarstjóri

"Námsmat sem námshvati"

Mánudaginn 23. apríl var haldið, á vegum Fræðsluskrifstofunnar, námskeið sem bar yfirskriftina "Námsmat sem námshvati". Leiðbeinandi og umsjónarmaður var Sigrún Björk Cortes, kennari. Fyrirlesari varpaði fram mörgum áhugaverðum spurningum sem vöktu til umhugsunar og umræðna. Dæmi um spurningar sem leitast var við að svara: Til hvers námsmat? Hvað segir í Aðalnámskrá grunnskóla um námsmat? Er rétt að meta einungis nemendur? Hver er stefnan í þínum skóla? Einnig var nokkur tími notaður til að ræða kosti samkennslu í skólastarfi. •••• Mikil ánægja var með námskeiðið eins og sést á meðfylgjandi myndum. Námskeiðið fór fram í félagsheimilinu Fellsborg Skagaströnd. Myndir: þátttakendur að störfum og uppstilltir

Stærðfræðikeppni Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra

Á Sumardaginn fyrsta fór fram hin árlega stærðfræðikeppni FNV og 9. bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra. Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni FNV, grunnskóla og fyrirtækja á Norðurlandi. Undankeppni stærðfræðikeppninnar fór fram 12. mars og tóku 105 nemendur af Norðurlandi vestra þátt í henni. Að þessu sinni komust 2 nemendur Höfðaskóla í úrslitakeppnina, þau Kristján Ýmir Hjartarson og Laufey Inga Stefánsdóttir. Bæði stóðu sig mjög vel í úrslitakeppninni og lenti Kristján Ýmir í öðru til þriðja sæti. Í verðlaun hlaut hann reiknivél, minniskubb, bók, tölvuorðabók, bol og eignarbikar ásamt 10.000 kr. Nánar má lesa um keppnina á heimasíðu FNV, http://www.fnv.is Elva Þórisdóttir.

Gospel námskeið

Hinn víðfrægi gospel-snillingur Óskar Einarsson verður með gospelnámskeið í Hólaneskirkju á Skagaströnd helgina 28.og 29. apríl. Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir,og hefur Óskar lofað að koma með liðsauka úr Fíladelfíukórnum sínum ef mæting á námskeiðið verður góð. Þeir sem hafa verið á námskeiðum hjá Óskari vita hvað það er gaman og gefandi að vinna með þessum frábæra listamanni. Hann smitar alla með lífskrafti sínum og fjöri. Allir sem hafa gaman af söng og samveru með glöðu fólki eru hvattir til þess að taka þessa daga frá og skrá sig á námskeiðið hjá Siggu Stefáns fyrir miðvikudaginn 25. apríl í síma: 4522644 eða 8202644 en hún veitir allar nánari upplýsingar. Sjáumst syngjandi kát, Kirkjukór Hólaneskirkju

Efling fyrirtækja og ný tækifæri skoðuð

Fréttatilkynning frá Impru nýsköpunarmiðstöð, 20. apríl 2006 Efling fyrirtækja og ný tækifæri skoðuð Frumkvöðlastarf á Norðurlandi vestra Fyrir skömmu lauk námskeiðinu Sóknarbraut sem Impra nýsköpunarmiðstöð gekkst fyrir á Skagaströnd og Blönduósi. Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja þar sem þátttakendur vinna með eigin hugmyndir eða fyrirtæki. Alls tóku 11 frumkvöðlar frá Norðurlandi vestra þátt í námskeiðinu. Viðskiptahugmyndir þátttakendanna sem nú útskrifuðust eru af fjölbreyttum toga. Meðal þeirra eru verkefni á sviði matvælaframleiðslu, smíði og iðnframleiðslu auk margs konar þjónustu. Þátttakendur eru sumir hverjir nú þegar með fyrirtæki í rekstri en aðrir skoðuðu ný tækifæri til atvinnusköpunar í sinni heimabyggð. Fram komu margar áhugaverðar viðskiptahugmyndir. Sérstaka viðurkenningu hlaut þó Oddný María Guðmundsdóttir fyrir áhugaverða og efnilega hugmynd sem tengist matvælavinnslu. Impra nýsköpunarmiðstöð gengst fyrir fjölbreyttum námskeiðum um land allt. Að þessu sinni var boðið upp á námskeiðið Sóknarbraut á Blönduósi og Skagaströnd, en kennt var til skiptist á stöðunum. Hugmyndin að baki námskeiðinu byggir á að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis. Framkvæmd námskeiðsins var unnin í samvinnu við Hauk Suska-Garðarsson atvinnuráðgjafa hjá Samtökum Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sveitarfélagið Höfðahrepp og sveitarfélagið Blönduósbæ. Aðalleiðbeinandi á Námskeiðinu var G. Ágúst Pétursson viðskiptaráðgjafi. Frekari upplýsingar um námskeið á vegum Impru nýsköpunarmiðstöðvar má finna á Vefnum undir slóðinni http://www.impra.is/namskeid/. Einnig má snúa sér til Brynju Sigurðardóttur (sími: 5707100, brynjasig@iti.is). Myndtexti: Mynd 1: Útskriftarhópurinn ásamt leiðbeinendum á námskeiðinu. Talið f.v.: G. Ágúst Pétursson (leiðbeinandi á námskeiðinu), Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, Sigurður Steingrímsson (verkefnisstjóri hjá Impru), Guðrún Magnúsdóttir, Karitas Pálsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Oddný María Guðmundsdóttir, Guðmundur J. Björnsson, Sunna Gestsdóttir, Eymundur Þórarinsson, og Haukur Suska-Garðarsson (atvinnuráðgjafi SSNV). Á myndina vantar Valdimar Viggósson, Kristján Blöndal og Sigurð Svavarsson sem einnig sátu námskeiðið. Mynd 2: Oddný María Guðmundsdóttir hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir áhugaverða og efnilega viðskiptahugmynd.

Stjórnmálafundur

Fimmtudaginn 19. apríl, sumardaginn fyrsta, verður Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, með opinn stjórnmálafund á Gistiheimilinu Dagsbrún Skagaströnd kl. 20,30. Allir velkomnir ! Sjálfstæðisflokkurinn í norðvesturkjördæmi.

Frétt frá Kvenfélaginu

Föstudaginn síðastliðinn fékk Kvenfélagið Eining kransakökumeistarann Halldór Kr. Sigurðsson til að koma og halda námskeið í kransakökugerð fyrir okkur hérna á Skagaströnd. Námskeiðið, sem haldið var í Félagsheimilinu, sóttu 12 konur sem allar gerðu 40 manna kransaköku. Þær komust að því að það er bara ekkert mál að gera kransaköku. Gerð var ein lítil líka sem konurnar fengu að borða og er óhætt að segja að hún hafi runnið ljúft niður. Við þökkum Halldóri kærlega fyrir komuna til okkar. F.h. Kvenfélagsins, Vigdís Elva

Styrkur úr Menningarsjóði Höfðahrepps

Styrkur úr Menningarsjóði Höfðahrepps Tómstunda- og menningarmálanefnd auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningarsjóði Höfðahrepps. Umsóknir geta átt við hvers konar menningarstarf, en sérstaklega er bent á myndlist, tónlist, leiklist, ritlist, varðveislu menningar og ýmsa menningarviðburði. Forsenda úthlutunar er að styrkþegar efli menningu í sveitarfélaginu og að umsækjandi eigi þar heimilisfesti. Umsóknareyðublað og reglur um menningarsjóð eru á skrifstofu Höfðahrepps. Umsóknafrestur er til 15. maí 2007. Tómstunda- og menningarmálanefnd Höfðahrepps

Næsti fundur hreppsnefndar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps miðvikudaginn 11. apríl 2007 á skrifstofu hreppsins kl 1100.. Dagskrá: Samningur við Skagabyggð Hugmyndir Íslenskra Almannatengsla Erindisbréf fyrir nefndir Höfðahrepps: · Fræðslunefnd · Tómstunda- og menningarmálanefnd · Atvinnu- og ferðamálanefnd Félagslegar íbúðir: · Reglur um útleigu á íbúðum. · Skrá um leigðar íbúðir · Umsókn um íbúð Greinargerð um úttekt á SSNV Bréf: a) Húsafriðunarnefnd ríkisins, 27. mars 2007. b) SAH Afurða ehf, 2. apríl 2007. c) Lánasjóðs sveitarfélaga, 28. mars 2007. d) Sjávarútvegsráðuneytisins, 20. mars 2007. Fundargerðir: a) Fræðslunefndar, 19.03.2007 b) Byggingarnefndar, 12.03.2007 c) Tómstunda og menningarmálanefndar, 12.03.2007. Önnur mál Sveitarstjóri

Ný klæðning á Hafnarlóð 6

Framkvæmdir eru hafnar við að skipta um klæðningu á skemmunni að Hafnarlóð 6. Samið var við Trésmiðjuna Hefil um framkvæmdina og er hún á vegum húsfélagsins að Hafnarlóð 6. Skemman er byggð árið 1946 sem mjölskemma fyrir Sílarverksmiðjuna. Húsið er í eigu nokkra aðila í dag og hefur að mestu tekið við því hlutverki að þjónusta hafnsækna starfssemi. Verktími er áætlaður 4 mánuðir og mun aðkoman að hafnarsvæðinu taka miklum breytingum enda hefur útlit hússins verið bágborið um nokkurn tíma.