Hljóðsýn - upplifun hjá Nes

Fimmtudaginn 27. október nk. kl 15.00 - 20.00 verður opið hús hjá Nes listamiðstöðinni. Þá munu listamennirnir Georgina Criddle og Dario Lazzaretto kynna hljóðlistaverk sitt Soundscapes - Hljóðsýn. Lifandi listviðburður sem áhugavert er að skoða og upplifa.

Skagi - dansviðburður

Dansverkið SKAGI verður frumflutt fimmtudaginn 20. október kl 20.00 í gamla Kaupfélagshúsinu að Einbúastíg 2 á Skagaströnd. Sýningar verða fimmtudag, föstudag, laugardag og síðasta sýning sunnudaginn 23. október. Allar sýningar hefjast kl 20.00 SKAGI Dansviðburður er saminn, stjórnað og fluttur af Andreu RC Kasper. Með henni dansa þrír af nemendum hennar, Sigurlaug Máney Hafliðadóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Kvöldið kannar einangrun, einmannaleika og það að vera einn. Viðburðurinn byrjar á mynd sem heitir Peninsula og er samvinnuverkefni milli Andreu RC Kasper sem er dansari búsett á Skagaströnd og Rebecca Levy sem er kvikmyndagerðarkona frá Bandaríkjunum. Eftir myndina er dansverkið SKAGI flutt. Miðaverð er: 1000 kr fyrir fullorðna 500 kr fyrir grunnskólabörn Dansverkið er styrkt af Menningarráði Norðurlands Vestra og Minningarsjóðnum um hjónin frá Garði og Vindhæli. Það eru takmörkuð sæti á hverri sýningu og móttaka eftir sýninguna.

Vatnslaust í Mýrinni og á Fellsbrautinni á morgun

Lokað verður fyrir vatnið í Mýrinni og á Fellsbrautinni föstudaginn 14. okt. 2011 frá kl. 13:00 og frameftir degi. Sveitarstjóri.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 10. október 2011 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Fjárhagsyfirlit a) Samantekt um rekstur fyrstu 8 mánuði ársins b) Bréf EFS um fjármál sveitarfélaga 2. Fellsborg endurbætur 3. Fræðslumál a) Samantekt um kennslukvóta og stöðuhlutföll b) Skólastefna 4. Samantekt um umhverfismál 5. Tjaldsvæði – útilegukort 6. Nes listamiðstöð 7. Bréf a) Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 5. ágúst 2011 b) Velferðarráðuneytis, dags. 9. september 2011 c) Guðmundar S. Jóhannssonar, dags 7. september 2011 d) Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 5. september 2011 e) Menningarráð Norðurlands vestra, dags. 30. september 2011 8. Fundargerðir a) Hafnarnefndar, 6.10.2011 b) Skipulags- og byggingarnefndar, 25.07.2011 c) Stjórnar Norðurár bs., 5.09.2011 d) Ársfundar Norðurár bs. 15.09.2011 e) Almannavarnarnefndar Húnavatnssýslna, 27.09.2011 f) Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 4.08.2011 g) Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 21.09.2011 h) Aðalfundar Menningarráðs Nl.vestra, 26.08.2011 i) Menningarráðs, 27.09.2011 j) Ársþings SSNV, 26.-27.08.2011 k) Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 9.09.2011 9. Umferðar- og löggæslumál 10. Önnur mál. Sveitarstjóri

Huggulegt haust á Skagaströnd

Á viðburðaskrá fyrir huggulegt haust er gert ráð fyrir fjórum möguleikum á Skagaströnd: Rannsóknasetur HÍ á Norður­landi vestra á Skagaströnd: Lau. 13-17. Kl. 13 -15: Skemmtilegt námskeið fyrir unga og aldna um íslenska handritamenningu. Leiðbeinandi Reynir Þór Eggertsson. Kl. 15 verður sýnd heimildamynd um ferðir Emily Lethbrigde á söguslóðum; kl. 16 - 17 : Emily Lethbridge segir frá ferð sinni um Ísland þegar hún las Íslend-ingasögurnar þar sem þær áttu sér stað. Spákonuhof á Skagaströnd Lau & sun. 13 - 17: Sögusýning um Þórdísi spákonu. Spáð í spil, lesið í lófa, bolla og rúnir. Kántrýsetrið á Skagaströnd Lau. & sun. 13 - 17: Opið hús Árnes, Elsta hús á Skagaströnd Lau. 13 - 17: Opið hús Sýningin: alþýðuheimili 1900 – 1920 Bækling fyrir söfn og viðburði má nálgast hér: http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Söguleg_safnahelgi2011.pdf

Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra

Söfn og setur á Norðurlandi vestra hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sérstaka safna- og setrahelgi 8. – 9. október nk. í tengslum við verkefnið „Huggulegt haust“. Það verður opið hús og sérstök dagskrá hjá fjölmörgum söfnum og setrum á Hvammstanga, Laugarbakka, Blönduósi, Skagaströnd og í Skagafirði. Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir heppna gesti: Allir sem heimsækja að minnsta kosti 4 söfn lenda í lukkupotti og geta unnið. Verkefnið er styrkt af Menningaráði Norðurlands vestra. Meiri upplýsingar og dagskrá má finna á vefsíðunni www.huggulegthaust.is.