Skagastrandarvegur opnaður eftir viðgerðir

Skagastrandarvegur sem hefur verið lokaður síðan kl 9 í morgun verður opnaðu aftur um kl 13.00 í dag. Viðgerð á veginum er þó ekki að fullu lokið og má því búast við einhverjum töfum til að byrja með og vegfarendur beðnir að sína tillitssemi við þá sem vinna að endurbótum og gæta fyllstu varúðar.

Skagastrandarvegur lokaður

Á vef Umferðarstofu er svohljóðandi auglýsing frá Vegagerðinni. Vegna ræsagerðar verður vegur 74 , Skagastrandarvegur, á milli Lækjardals og Mýrarvegar lokaður á morgun, laugardaginn 31. mars, frá kl. 09:00 og fram eftir degi. http://www.us.is/page/umferdin_i_dag

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2011/2012 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 1182, 21. desember 2011 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir: Kaldrananeshreppur (Drangsnes) Akureyri (Grímsey) Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 297/2012 í Stjórnartíðindum Sveitarfélagið Vogar Vesturbyggð (Brjánslækur, Bíldudalur) Árneshreppur Strandabyggð (Hólmavík) Blönduósbær (Blönduós) Sveitarfélagið Skagaströnd Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður) Akureyri (Hrísey) Grýtubakkahreppur (Grenivík) Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2012. Fiskistofa, 27. mars 2012.

Gásleppuverkun á Skagaströnd

Útgerðarfélagið Sæfari ehf. frá Hrauni á Skaga er að koma upp aðstöðu fyrir grásleppuverkun á Skagaströnd í nýuppgerðu vinnsluhúsi sínu. Framkvæmdir hafa staðið yfir að undanförnu og var allt klárt þegar veiðar hófust í síðustu viku. Reiknað er með að alls verði verkuð og söltuð hrogn af 4-5 bátum auk Sæfara SK 112 sem er í eigu útgerðarfélagsins. Fiskmarkaðurinn mun taka við grásleppunni sjálfri og selja í gegnum uppboðskerfi sitt. Í forystu fyrir Sæfara ehf. eru bræðurnir Steinn og Jóhann Rögnvaldssynir en auk þess eru meðeigendur að útgerðinni faðir þeirra Rögnvaldur Steinsson og systkinin frá Víkum á Skaga. Sæfari hefur verið gerður út frá Skagaströnd um margra ára skeið og hefur aðallega stundað línuveiðar auk grásleppuveiða. Nú þegar hafa 8 bátar hafið grásleppuveiðar frá Skagaströnd og lofa aflabrögð góðu fyrstu dagana.

95. ársþing Ungmennasambands A-Hún.

95. ársþing Ungmennasambands A-Hún. fór fram um helgina á 100 ára afmælisári sambandsins en það verður 100 ára þann 30. mars n.k. Um 10 fulltrúar voru mættir ásamt gestum frá ÍSÍ og UMFÍ. Fram kom á þinginu að mikil afmælisveisla verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var Íþróttamaður ársins valinn en það var að þessu sinni Magnús Örn Valsson úr Geislum en Magnús Örn hefur aðallega einbeitt sér að kúluvarpi og stóð sig mjög vel á síðasta ári. -------- kv. Eysteinn Pétur Frkv.stjóri USAH

Námskeið í hugrænni atferlismeðferð

Um fimmtíu starfsmenn leik- og grunnskóla, á svæði fræðsluskrifstofu A-Hún, mætti á endurmenntunarnámskeið í Fellsborg á Skagaströnd 8. mars síðast liðinn. Á námskeiðinu, sem stóð frá tvö til fimm, fjallaði Þórarinn Viðar Hjaltason, sálfræðingur, um hugræna atferlismeðferð og hvernig nota má aðferðir hennar til að bæta samskipti innan skóla og stuðla að betri líðan nemenda. Í fyrirlestri sínum kynnti Þórarinn hagnýtar aðferðir til að fá fram jákvæðari viðhorf nemenda til skólans og vinnu sinnar þar, hvernig nota má hugræna atferlismeðferð við úrlausn vandamála og hvernig vekja má áhuga nemenda á jákvæðum breytingum með sérstökum hvatningarviðtölum. Allt þetta leiðir síðan til betri skólabrags, sem er eilíft markmið allra skóla, hvar svo sem þeir eru á vegi staddir. Námskeiðið mæltist vel fyrir hjá þátttakendum sem öllum er áfram um að nemendum sínum líði sem best í skólanum. Mynd: Þátttakendur og fyrirlesari

Leikhópurinn Kjallarinn kynnir leikritið Áfram Latibær.

Fjölskylduleikritið Áfram Latibær var sýnt í Fellsborg þann 6.mars við mjög góðar undirtektir. Vegna mikils áhuga hefur hópurinn ákveðið að bæta við einni sýningu á föstudaginn 9.mars. Mun vera sýnt í Fellsborg eins og áður, og byrjar sýningin á slaginu 19.30 !! Ekki missa af þessari frábæru skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Áfram Latibær kl. 19.30 í Fellsborg þann 9.mars Miðaverð er eins og áður: 1000 kr. / 500 kr. fyrir 10 ára og yngri. Sjáumst hress í Latabæ. María Ösp Ómarsdóttir

Tónleikar í Blönduóskirkju

Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Blönduóskirkju þriðjudaginn 13. mars næstkomandi og hefjast þeir klukkan 20:30. Söngskráin er fjölbreytt með alþjóðlegum blæ, en kórinn syngur á tíu tungumálum. Söngstjóri er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikari er Rögnvaldur Valbergsson. Miðaverð 2000 krónur. Ath. kort ekki tekin.

Flóamarkaður á Skagaströnd!

Margir Skagstrendingar eru nú í óða önn að tína út úr geymslum hjá sér ýmiss konar dót á flóamarkaðinn sem verður í Djásnum og dúlleríi á laugardaginn, 3. mars. Fólk úr nágrannabyggðum er einnig væntanlegt með söluvarning og eins hefur frést af varningi alla leið frá Vestmannaeyjum. Það má því leiða líkum að því að úrvalið verði fjölbreytt og það verði skemmtileg stemning hjá stöllunum, Signýju, Björk og Birnu í Djásnum og dúlleríi. Opið er frá kl. 14.00-18.00.

Námskeið á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún.

Tólf húnvetnskir kennarar læra að nota CAT-kassann. Tólf kennarar úr skólunum í austur og vestur Húnavatnssýslum hafa nú fengið réttindi til að nota CAT-kassann sem er hjálpartæki við kennslu og lausn ýmissa tilfinningavandamála hjá börnum. Til að öðlast þessi réttindi sóttu kennararnir námskeið í Blönduskóla hjá Ásgerði Ólafsdóttur, sérkennara og einhverfuráðgjafa, en hún ásamt samstarfskonu sinni, hefur þýtt efni kassans úr dönsku þaðan sem efnið er komið. CAT-kassinn er sérstaklega þróaður til að auðvelda samræður við börn og ungmenni sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig beint um tilfinningar, hugsanir , upplifanir og líðan. Bæði foreldrar og fagfólk getur notað CAT-kassann á áhrifaríkan hátt í daglegum samræðum við börn. CAT-kassinn er upphaflega þróaður til að styðja samtöl við börn með raskanir á einhverfurófi. Reynslan hefur síðan leitt í ljós að börn með eðlilegan þroska sem eiga í ýmsum erfiðleikum geta einnig haft mikið gagn af CAT-kassanum. Það er von og ásetningur þátttakenda á námskeiðinu að notkun þeirra á CAT-kassanum verði til að gera góða skóla í sýslunum enn betri í framtíðinni. Mynd: Þátttakendur og leiðbeinandi (lengst til hægri)