Spilavist

Þriggja kvölda spilavist hefst þann 1. okt. Síðan 8. okt. og 15. okt. og verður spilað í félagsheimilinu Fellsborg frá kl:20:00 stundvíslega. Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og síðan heildarverðlaun fyrir öll kvöldin. 800kr. fyrir hvert kvöld en ef borgað er fyrir öll kvöldin þá 2.000kr. kaffiveitingar innifaldar. Kvenfélagið Eining.

Blóðbað í barnaherberginu.

Laugardaginn 29. september klukkan 1600 - 18:00 verður boðið upp á námskeið og umræðufund um áhrif óhóflegrar tölvunotkunar unglinga með sérstaka áherslu á ofbeldisleiki. Námskeiðið fer fram í húsnæði Simey á Akureyri en verður sent gegnum fjarfundabúnað í námsstofuna á Skagaströnd, sem er á efstu hæðinni á gamla kaupfélaginu. Námskeiðið er ókeypis og allir eru velkomnir. Dagskrá: 1.Erindi frá Arnari Arngrímssyni og Guðjóni H. Haukssyni þar sem velt er fyrir sér spurningum sem varða tölvunotkun og áhrif á félagsfærni og þátttöku unglinga í samfélaginu. 2. Reynslusaga tölvufíkils 3. Þátttakendur fá tækifæri til að prófa ofbeldisfulla tölvuleiki og upplifa stemninguna fyrir framan skjáinn (EKKI Í BOÐI Á SKAGASTRÖND) 4. Pétur Maack, sálfræðingur fjallar um áhrif tölvuleikjanna og hvað er hægt að gera 5.Umræður Námsstofan

Vísindavaka Rannís

Vísindavaka er haldin árlega í Reykjavík í samvinnu margra skóla og aðila úr atvinnulífinu. Á vísindavöku er fjallað um allt milli himins og jarðar á skemmtilegan og skiljanlegan hátt. Með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan má sjá hvað er í boði á vökunni í ár. Kynntu þér málið og sjáðu hvort þú finnur ekki eitthvað sem þig langar að sjá og heyra. Fjölbreytt verkefni kynnt á Vísindavöku Úrval spennandi rannsóknaverkefna verður kynnt á Vísindavöku í ár, en hún verður í Háskólabíói, föstudaginn 28. september kl. 17-22.Sjá nánar http://www.rannis.is/visindavaka/frettir/nr/2786/

Langar þig að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt?

Helgina 5.-7. október ætlar ungmennaráð UMFÍ og 0% að hittast og eyða saman helginni á Laugum í Sælingsdal. Öll ungmenni á aldrinum 16-30 ára sem vilja hittast og skemmta sér án vímuefna eru velkomin. Til að kynna sér málin frekar og/eða skrá sig er hægt að hafa samband við: Sigríði í síma: 866-2961, sem7@hi.is eða Einar í síma: 697-4810, einar@nullprosent.is. Taka þarf fram: fullt nafn, aldur, símanúmer og netfang. Fæði, gisting og uppihald er þér að kostnaðarlausu! Hlökkum til að heyra í þér, Ungmennaráð UMFÍ og 0%

Ljóskristallar!

Á Hnappstaðatúni hefur verið sett upp útilistaverk sem er upplýstur kristall - bleikur á lit sem skín í haustmyrkrinu. Það er franska listakonan Delphine Perlstein sem á heiður af verkinu en hún dvaldi í Nes listamiðstöð í ágústmánuði. Lýsingu í verkið hannaði Hallbjörn Björnsson, rafvirkjameistari. Delphine stundaði nám við Sorbonne háskólann eða Svartaskóla eins og hann hefur um aldir verið nefndur á Íslandi, eftir að Sæmundur fróði var þar. Það kemur því kannski ekki á óvart að hún sæki merkingu í verk sín dýpra en virðist við fyrstu sýn. Í lýsingur sinni á verkinu segir Delphine: Þessi skúlptúr er byggður á gullnu formi fimmhyrningsins sem inniheldur hin gullnu reglu þríhyrningsins sem aftur var undirstaða stærðfræðireglu Fibonnacci. Fimmhyrningur er tákn fullkomnunar, lífs, fegurðar og ástar. Hann vísar stundum til Venusar, hinnar helgu kvenímyndar. Kristallarnir eru 7 sem er einnig heilög tala eins og við þekkjum frá sjö undrum veraldar. Sem steinn hefur kristallinn mátt hreinsunar á umhverfi sínu. Hann móttekur ljós og magnar það upp. Á hinu andlega sviði er kristallinn vörn og hefur hreinsunarmátt fyrir sálina og hjálpar okkur að ná markmiðum okkar. Hann er góður fyrir hugleiðslu og skarpskyggni. Hann gefur frá sér orku og raðar upp orkustöðvum mannsins. Hann er margbrotinn og fullkominn steinn. Ætlunin með gerð skúlptúrsins var að skila fallegri hugsun tengdri ást, fegurð, orku, heiðarleika og sannleika sem er meðvitað blandað saman í þeim tilgangi að hugleiða þau. Bleiki liturinn í verkinu er litur rósarinnar, tákn lífsins sem minnir á að lífið er verðmætt og við verðum að gæta þess vel. Kristalnum er stillt upp þannig að hann opnast eins og blóm og í grunninn er öll uppstilling verksins vísun í móður náttúru bæði sem kristallar og samlíking við blómkrónuna. Mér fannst einnig mjög áhugavert að stilla verkinu upp miðsvæðis á Skagaströnd og mynda þannig hlekk milli náttúru og menningar. Það er einnig gaman að sjá verkið í svon fallegu umhverfi.

Félagsstarf eldri borgara hafið

Félagsstarf eldri borgara á Skagaströnd er hafið eftir sumarfrí. Vetrarstarfið hófst sl. fimmtudag í nýju rými sem gert hefur verið upp í félagsheimilinu Fellsborg. Starfið var dálítið á hrakhólum síðastliðinn vetur þar sem öll neðri hæð félgasheimilisins var tekin til endurbóta en þar hefur starfsemin verið undanfarin ár. Endurbæturnar voru fólgnar í að herbergi í suðurhlutanum voru öll sameinuð í einn sal með kaffiaðstöðu og geymslum og tvö rými í norðurhlutanum voru sameinuð fyrir bókasafn Skagastrandar. Nú er félagsstarfið sem sagt flutt inn í nýuppgert rými sem er bæði bjartara og rýmra en sú aðstaða sem áður hýsti starfið. Jafnframt félagsstarfinu er gert ráð fyrir að hægt sé að nýta aðstöðuna til fundahalda og reiknað með að Kvenfélag og Lionsklúbbur sem gáfu eftir herbergi sín muni nota salinn fyrir fundi og aðra starfsemi sína.

Kúreki norðursins heiðraður

Hallbjörn J. Hjartarson "kúreki norðursins" heiðraður af Country Music Association og sendiráði Bandaríkjanna Íslandi. Sendiherra Bandaríkjanna Luis E.Arreaga mun veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans til Kántrýtónlistar. Afhending viðurkenningarinnar fer fram í Kántríbæ á Skagaströnd þriðjudaginn 18. september kl. 17.00. Sendiherrann mun veita Hallbirni viðurkenningu frá hinu bandaríska Country Music Association með áletruninni „The Country Music Association Recognizes Hallbjörn Hjartarson for his Contributions to Country Music in Iceland.“ viðurkenningin er undirrituð af forstjóra samtakanna Steve Moore. Hallbjörn fær einnig viðurkenningu frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi með áletruninni "The Embassy of the United States of America recognizes Hallbjörn Hjartarson “The Icelandic Cowboy” for his invaluable efforts to promote country music in Iceland. His dedication and creativity have combined the American music style with Icelandic culture creating a unique genre of Icelandic Country music." „Hallbjörn’s artistry is a wonderful bridge between American and Icelandic culture. His music brings people together” – Luis E. Arreaga, U.S. Ambassador to Iceland Hallbjörn sem er löngu landsþekktur fyrir tónlist sína er frumkvöðull sem hefur helgað lífsstarf sitt því að samþætta íslenska tónlist við bandaríska tónlistarstefnu án þess nokkurn tíma að víkja frá textagerð á móðurmálinu. Hann hefur um langt árabil átt og rekið útvarpsstöðina „Útvarp Kántrýbæ“ sem hefur kynnt kántrýtónlist fyrir fjölmörgum Íslendingum auk þess hefur Hallbjörn hefur gefið út fjölda hljómplatna með íslenskri kántrýtónlist. Hann stofnaði einnig veitingastaðin Kántrýbæ sem hefur sterka tilvísun í þá tónlistarstefnu sem Hallbjörn stendur fyrir. Kynnar við afhendinguna verða Margrét Blöndal og Ásbjörn Björgvinsson. Til máls taka Adolf H. Berndsen, oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar, Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og Hallbjörn J. Hjartarson, „Kúreki Norðursins.“ Tónlistarstjórn verður í höndum Magnúsar Kjartanssonar og með honum verða þjóðþekktir tónlistarmenn. Við óskum Hallbirni innilega til hamingju.

Sjálfboðaliða vantar fyrir SEAS hátíð.

Nes Listamaðurinn Sophie Gee er að leita að áhugamönnum til að hjálpa og leika í verkefni/sýningu um hvað við gerum í daglegu lífi. Verkið verður sýnt laugardaginn 29. september. Þátttakendur /leikarar eru beðnir um að gera hluti sem við gerum dags daglega s.s að hlaupa, þrífa skó, elda og syngja. Það eru engar línur eða setningar sem þarf að læra. Áhugamenn geta líka hjálpað við að búa til sögur og skrifa verkið með listamanninum. Lítið verður af æfingum og á sveigjanlegum tímum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, vinsamlegast hringdu í Sophie í síma 862 0719, Netfang gee.sophie@gmail.com eða komdu við hjá NES. ATH! Það verður Túlkur á öllum æfingum.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 6. september 2012 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Samstarfsverkefni með rannsóknarsetri HÍ 2. Hitaveita 3. Erindi óbyggðanefndar 4. Tónlistarnám á framhaldsskólastigi 5. Bréf: a. Siglingastofnunar, 31. júlí 2012 b. Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. júlí 2012 c. Skógræktarfélags Austur Húnvetninga, 11. ágúst 2012 d. Áslaugar Ottósdóttur, dags. í ágúst 2012 e. S. Agnesar Sævarsdóttur, dags. í júlí 2012 f. Pricewaterhouse Coopers ehf, dags. í júlí 2012 g. Enor ehf. dags. 31. ágúst 2012 6. Fundargerðir: a. Tómstunda og menningarmálanefndar, 7.07.2012 b. Tómstunda og menningarmálanefndar, 26.07.2012 c. Tómstunda og menningarmálanefndar, 14.08.2012 d. Stjórnar Byggðasamlags um atvinnu og menningarmál, 21.07.2012 e. Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 3.07.2012 f. Stjórnar SSNV, 5.07.2012 g. Stjórnar Norðurár bs. 3.04.2012 h. Stjórnar Norðurár bs. 3.07.2012 i. Aðalfundar Norðurár bs. 12.07.2012 j. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 29.06.2012 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Ávarp forstjóra RARIK v/ Hitaveitudaga á Skagaströnd

Ég býð Skagstrendinga velkomna á hitaveitudaga á Skagaströnd. Eins og flestum er kunnugt var ákvörðun tekin um hitaveitu til Skagastrandar í lok síðasta árs. Aðdragandi þess var nokkuð langur eins og fram kom á kynningafundum 1. febrúar sl. og ástæðulaust að fjalla um hann hér. Staðan í verkefninu er núna sú að verið er að leggja stofnæð frá Reykjum til Blönduóss og er sá áfangi á áætlun, en gert ráð fyrir að honum ljúki í haust. Dælustöð við Blönduós hefur verið byggð og verið er að undirbúa samning um frágang búnaðar í henni. Þverun á Blöndu er í skoðun í samstarfi við Blönduósbæ og Vegagerðina og samningar eru í farvatninu við landeigendur á milli Blönduóss og Skagastrandar. Þá er verið að ljúka við hönnun á dreifikerfinu á Skagaströnd. Næsta vor hefst lagning stofnlagnar frá Blönduósi til Skagastrandar og er gert ráð fyrir að þeim áfanga ljúki þá um haustið. Á sama tíma verður hafist handa við lagningu dreifikerfisins á Skagaströnd, sem einnig er gert ráð fyrir að ljúki um haustið. Íbúar munu því geta tengst veitunni haustið 2013, ef allar áætlanir ganga eftir. Kostnaður íbúa er mismikill og ræðst af því hve miklu þarf að breyta innanhúss. Það verkefni er ekki á vegum RARIK, en hins vegar veitir ríkið stofnstyrki til nýrra hitaveitna sem að hluta til renna til íbúanna. Þegar ákveðið var að fara í veituna um síðustu áramót námu stofnstyrkir til nýrra hitaveitna 8 ára rafhitaniðurgreiðslum, en nú hefur lögum verið breytt og nema þeir nú 12 ára rafhitaniðurgreiðslum. Við hönnun og arðsemismat veitunnar var gert ráð fyrir stofnstyrk sem næmi 8 ára niðurgreiðslum og að 65% hans færi til veitunnar en 35% til íbúanna. Er það í samræmi við það sem almennt hefur tíðkast við stofnun nýrra hitaveitna. RARIK hefur hins vegar ákveðið að vegna hærri stofnstyrks muni hann skiptist jafnt á milli íbúa og veitu. Það þýðir, ásamt breytingu á viðmiðun í 12 ár, að í stað þess að íbúar í þéttbýlinu fái að meðaltali um 250 þúsund kr. í stofnstyrk fá þeir nú að meðaltali um 550 þúsund kr. til að greiða tengigjald og til að breyta húsnæði sínu. Sú upphæð miðast við núverandi fjárveitingu í þennan málaflokk. Tengigjald RARIK er skv. núverandi gjaldskrá um 250 þúsund fyrir venjulegt íbúðarhús í þéttbýli. RARIK fær til sín stofnstyrkinn þegar Orkustofnun hefur fengið staðfestingu á að viðkomandi hafi tengst hitaveitunni og sér um skiptingu hans milli íbúa og veitu. RARIK hefur ákveðið að bjóða upp á að fjármagna tengigjaldið fyrir þá sem njóta stofnstyrks, svo þeir þurfi ekki að leggja út fyrir tengigjaldinu á meðan beðið er eftir greiðslu á styrknum. Þegar hann berst fá íbúar í hendur mismun styrksins og tengigjaldsins, eða sem nemur að meðaltali um 300 þúsund kr. til almennra heimila í þéttbýlinu á Skagaströnd. Á hitaveitudögum á Skagaströnd eru aðilar frá RARIK, Sveitarfélaginu, Orkustofnun, Landsbankanum og Fél­agi pípulagningameistara, auk þess sem bæði Danfoss og BYKO kynna vörur sínar. Allir þessir aðilar munu reyna að svara spurningum íbúa eins og kostur er. RARIK veitir upplýsingar um veituna og væntanleg áhrif á húshitunarkostnað, tengigjaldið, stöðu verkefnisins o.fl. Orkustofnun mun kynna reglur um stofnstyrki sem veittir eru til nýrra hitaveitna, hvenær og hvernig þeir er afhentir, auk þess að gefa upplýsingar um áætlaða up­phæð miðað við núverandi fjárveitingu. Sveitarfélagið mun kynna þær skyldur sem byggingareglugerð setur á íbúa við breytinga á húsnæði og annað sem snýr að því. Fulltrúi Félags pípulagningameistara mun veita ráðgjöf og Landsbankinn mun kynna fjármögnunarmöguleika vegna breytinga á húsum. Þá munu Danfoss og Byko kynna vörur sínar Ég vona að á þessum hitaveitudögum fái íbúar á Skagaströnd svör við þeim spurningum sem á þeim brenna vegna þessa mikla verkefnis í sveitarfélaginu og býð þá velkomna á hitaveitudaga. Tryggvi Þór Haraldsson