Ræktum okkar eigi grænmeti

Matjurtagarðarnir  á Tótutúni hafa verið tættir og eru tilbúnir til notkunar. Þeir sem hyggjast nýta sér plássið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Árna Geir í síma 861 4267.

Golfsýning á Háagerðisvelli

Fimmtudaginn 2. júní, kl. 16.00, verður Richard Hughes golfkennari með golfsýningu (golf tricks) á Háagerðisvelli. Ýmis kennslutilboð í golfi verða kynnt á staðnum, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Þeir sem hafa áhuga á kennslu hafi samband við Richard í síma 847 0875 eða Ingiberg í síma 892 3080. Munið að það er opið fyrir skráningu í golfskólann fyrir börn og unglinga.   Allir velkomnir

Listamiðstöð á Skagaströnd í þrjú ár

Nákvæmlega þrjú ár eru nú frá því að fyrstu listmennirnir komu til dvalar hjá Nesi listamiðstöð ehf. Meðal þeirra fyrstu voru rithöfundarnir Bjarni Bjarnason og Þorgrímur Þráinsson. Þeir lásu upp úr verkum sínum í kaffihúsinu Bjarmanesi. Húsfyllir var og skemmtu allir sér vel, rithöfundarnir sem og áheyrendur. Fyrirmyndin er þekkt víða um heim og raunar einnig hér á Íslandi. Listamönnum er einfaldlega boðið að sækja um aðstöðu gegn gjaldi. Dvalartíminn hefur verið að lágmarki í einn mánuður en  fjölmargir hafa verið lengur og dæmi eru um að listmenn hafi verið hér í sex mánuði. Rétt um 285 listmenn hafa dvalið þennan tíma á Skagaströnd. Meðaldvalartíminn er um einn og hálfur mánuður. Þess má líka geta að sumir hafa komið með fjölskyldur sínar og jafnvel eru dæmi um að barn listamanna hafi stundað nám sitt í Höfðaskóla á Skagaströnd. Makar og börn eru ekki með í ofangreindri tölu. Dvöl listamanna á Skagaströnd hefur þegar reynst mikil lyftistöng fyrir samfélagið enda vilja listamennirnir fúslega leggja sitt af mörkum til að efla menningarlífið. Nefna má viðburði eins og listsýningar, örnámskeið, fyrirlestrahald og samstarf við skóla og stofnanir bæjarins.  Fjölmargt má nefna: Mánaðarlega hefur verið efnt til svokallaðra opinna húsa og bæjarbúum þá gefin kostur á að heimsækja listamiðstöðina. Þeir hafa tekið á móti fólki og kynntu þeim list sína og fluttu fyrirlestra eða tóku fólk tali í smærri hópum og svöruðu spurningum.  Aðsóknin hefur verið mismunandi eða allt frá 20 til um 160 manns. Listmennirnir hafa verið einkar duglegir og áhugasamir um að bjóða upp á vinnusmiðjur fyrir krakkana í bænum. Nefna má að í vor var öllum krökkum í 3. til 8. bekk boðið að koma á hverjum mánudegi til að vinna lítil verkefni með listamönnunum. Einnig voru haldin námskeið fyrir krakka í grímugerð, listmálun, skúlptúrgerð, gerð „stop motion“ myndbanda og vatnslitamálun svo eitthvað sé nefnt.  Einnig hefur listamiðstöðin „lánað“ listamenn „yfir fjallið“. T.d. tóku þrír listamenn þátt í að kenna bókband, ljósmyndun og dans á þemadögum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra síðastliðið vor.  Atvinnudansari sem dvaldi hjá Nesi síðastliðið vor tók þátt í kántrýdönsum með Kántrýdansahópnum Sylgjunum. Það varð svo til þess að hún samdi dans fyrir hópinn og þegar hann tók þátt í keppni í Reykjavík í maí 2010 var hann hluti af dagskránni.  Listamenn hafa verið duglegir að standa fyrir gjörningum þar má nefna, „Bláa útgáfan“ gjörningur með ljósi og lyfturum eftir Anna Grunemann „drawing a straight line“ gjörningur í samvinnu nemendur grunnskólans eftir Aimée Xenou og „Survey of sound“ hljóðgjörningur í Hólaneskirkju eftir Tim Bruniges og Sarah Mosca.  Haldnar voru nokkrar sýningar á síðasta ári. Fyrst ber að nefna „After works“ í kjallaranum á Bjarmanesi á Kántrýdögum, þar sýndu þeir Jude Griebel og Jared Betts málverk sín.  Í fyrra var efnt til sýningarinnar „Inspired by Iceland“ í Frystinum Gallerí á Kántrýdögum. Listamiðstöðin hafði biðlað til þeirra listamanna sem höfðu dvalið á Skagatrönd og fengið marga þeirra til að senda að senda listaverk á sýninguna. Fjölmörg verk bárust og gáfu flestir listamennirnir Sveitafélaginu Skagaströnd verkin. Aimée Xenou setti svo nú í febrúar mánuði upp skemmtilega sýningu í kjallaranum á Bjarmanes undir heitinu „Það er“. Á haustdögum dvöldu hjá Nesi tvær þýskar listakonur sem komu í gegnum samvinnuverkefni við Künstlerhaus Lukas í Þýskalandi. Þær stóðu fyrir „Swap shop“, eins konar skiptimarkaði og bauðst heimamönnum að koma og skipta við þær á einhverju heimagerðu og listaverki eftir þær. Vakti þetta mikinn áhuga bæjarbúa. Í desember kom listakona frá Bandaríkjunum til þess eins að kenna námskeið í hefðbundinni japanskri pappírsgerð. Pappírgerðarnámskeiðið var einn af fjölmörgu viðburðum sem listakonan Aimée Xenou stóð fyrir á meðan dvöl hennar stóð. Bróðir hennar kom sérstaklega til að spila á orgelið í kirkjunni meðan á gjörningi stóð en í honum tóku einnig þátt stúlkur sem hafa verið að læra dans hjá heimamanninum Andreu Kasper hér í vetur. Foreldrar Aimée komu einnig og tóku þátt í seinni hluta gjörningsins „Innflutningur á fjölskyldu“ þar sem lesin voru brot úr bréfum frá móður Aimée. Mesta athygli vöktu þó kökurnar, en þær mæðgur bökuðu eina smáköku fyrir hvern og einn bæjarbúa og þær voru í ofanálag merktar íbúanum. Íbúar þurftu svo að hafa fyrir því að finna kökuna á kökuborði í listamiðstöðinni.  Eitt af markmiðum Ness listamiðstöðvar er að færa listina nær fólkinu og eins og má sjá á upptalningunni hér að ofan hefur margt skemmtilegt verið gert sem vakið hefur áhuga og athygli bæjarbúa og íbúa á Norðurlandi vestra. Níu listamenn eru nú komnir til Skagastrandar og munu dvelja hér í júní.  Hér eru nöfn þeirra: Emily Browne Bandaríkjunum Karen Voltz Bandaríkjunum Naomi Falk Bandaríkjunum Evelin Rupschus Þýskalandi Shane Finan Írlandi Dieter Wagner Þýskalandi Adrian Hatfield Bandaríkjunum Candice Chu Bandaríkjunum MinHae Lee Suður Kóreu Jill Connell         Kanada Ellie Brown Bandaríkjunum  Ástæða er til að hvetja fólk til að skoða heimasíðu Nes listmiðstöðar, www.neslist.is og fésbókarsíðuna.

„Úr smiðju vefarans mikla“

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2011 Yfirlitssýning á verkum Guðrúnar J. Vigfúsdóttur veflistakonu frá Ísafirði, verður opnuð laugardaginn 4. júní n.k. kl. 14.00. Eyrún Ísfold Gísladóttir, dóttir listakonunnar, ræðir við gesti og opnar sýninguna. Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson stíga á stokk með ljúfan tónlistarflutning. Að vanda verður boðið uppá kaffi og kleinur, mjólk/kókómjólk fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir. Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 - 17.00

Kántrýsetur verður opnað í Kántrýbæ

Þann 11. júní næstkomandi, sem er laugardagurinn fyrir hvítasunnu, verður opnað Kántrýsetur í Kántrýbæ með mikilli viðhöfn.  Þar verður ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis, allt frá fæðingu fram á þennan dag. Saga sem hófst í líkhúsinu á Blönduósi því Hallbjörn var talinn andvana við fæðingu.  Hallbjörn hafði hins vegar einsett sér að lifa og eins og þeir vita sem þekkja hann  heldur hann alltaf sínu striki, hvað sem hver segir. Ótal margir hafa hrist höfuðið yfir uppátækjum hans, allt frá því hann var barn. Sjálfur segist hann alltaf hafa haft sína vitleysu á þurru, ólíkt mörgum, og draumur hans um að gera Skagaströnd að eftirsóknarverðum ferðamannastað hefur sannarlega ræst.  Formleg opnun setursins verður laugardaginn 11. júní og af því tilefni hefur Magnús Kjartansson búið til heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarssonar með söngvarana Björgvin Halldórsson, Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur í fararbroddi. Hljómsveitin mun halda tónleika í Kántrýbæ og slá svo upp sannkölluðu kántrýballi að hætti kúreka norðursins.  Hugmyndin um Kántrýsetur er ekki ný af nálinni en er nú loks að verða að veruleika. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántríbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs Norðurlands vestra og Minningarsjóðs um hjónin frá Vindhæli og Garði, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Iðnaðarráðneytis.  Umsjón með verkefninu hefur Margrét Blöndal, útvarpskona með meiru og um hönnun og uppsetningu sér Björn G. Björnsson, leikmyndahönnuður. 

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins

„Úr smiðju vefarans mikla“ er yfirlitssýning í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi á verkum Guðrúnar Vigfúsdóttur veflistakonu frá Ísafirði. Hún verður opnuð laugardaginn 4. júní n.k. kl. 14.00. Eyrún Gísladóttir, dóttir listakonunnar, ræðir við gesti og opnar sýninguna.   Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson stíga á stokk með ljúfan tónlistarflutning.   Að vanda verður boðið uppá kaffi og kleinur, mjólk/kókómjólk fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir.   Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 - 17.00.                                                                                                                      

Hvað ertu með í geymslunni hjá þér?

“Við erum að vonast til Húnvetningar og Skagfirðingar sæki um að vera með á flóamarkaði í Djásnum og dúlleríi á fimmtudaginn - þá verður þetta ennþá fjölbreyttara og skemmtilegra.”  Þetta segja sætu skvísurnar sem standa að Djásnum og dúlleríi á Skagaströnd. Og þær segja að enn séu nokkur borðpláss eftir. Í bláeygu sakleysi sínu spyrja: „Er ekki trúlegt að einhver annar gæti einmitt notað dótið sem tekur bara pláss í geymslunni hjá þér?“ Flóamarkaðurinn verður opinn frá 14 - 18  fimmtudaginn 2. júní.  Hægt að panta pláss í síma: 862 6997. 

Trésmiðjan sendir bústað til Dalvíkur

Trésmiðja Helga Gunnarssonar sendi frá sér enn eitt húsið í gærkvöldi. Það er bústaður sem unnið hefur verið að frá því í mars. Hann er tvílyftur, svefnloft er á efri hæðinni, alls 66 fermetrar og þar að auki verður verönd fyrir framan húsið, hluti hennar er yfirbyggður. Grunnflöturinn er 6x13,5 ferm. Bústaðurinn er heilsárshús og var fluttur til Dalvíkur þar sem hann var settur á sinn grunn. Myndirnar voru teknar þegar húsið var flutt frá Skagaströnd.

Hún hefur sagt mér ...

Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefir sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefir sagt mér að vakna og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót. Kanadíski listamaðurinn Jude Griebel teiknaði fyrra mynd á vegg gamla Hólanesshússins. Krýpur það maður fyrir framan fugl sem eflaust segir honum til syndanna sinna.

Áminning vegna hundahalds

Ágætu Skagstrendingar Undanfarið hefur í vaxandi mæli borið á því að fólk láti hunda sína ganga lausa þvert á mjög skýra reglu í samþykkt um hundahald þar sem segir:  „Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri, heldur vera í taumi í fylgd með aðila, sem hefur fullt vald yfir honum. Á almannafæri er hundaeiganda skylt að fjarlægja saur eftir hund/hunda sína á tryggilegan hátt.“ Um síðari hluta þessarar reglu verður því miður einnig að gefa sumum hundaeigendum falleinkunn því víða er hundaskítur á almannafæri.   Er hér með skorað á hundaeigendur að bæta ráð sitt bæði hvað varðar lausagöngu hundanna og óþrif eftir þá. Sérstaklega verður að gera kröfu til að borin sé virðing fyrir leiksvæðum barna í þessum efnum. Eins og oft gerist geta fáir komið óorði á marga með slæmu framferði. Nokkur brögð eru einnig að því að hundar séu óskráðir og er hér með skorað á þá sem það á við að bæta úr og ganga frá skráningu hunda sinna á skrifstofu sveitarfélagsins.  Ástæða er til að benda á að allir hundar sem eru handsamaðir skulu leystir út með greiðslu samkvæmt gjaldskrá.  Í samþykktum um hundahald segir m.a.:   „Hunda sem ganga lausir utanhúss skal handsama og færa til geymslu. Sama gildir um hættulega hunda og óleyfilega hunda.  Kostnaður við töku og geymslu hunda skal að fullu greiddur af eigendum samkvæmt gildandi gjaldskrá.“ Skrá um þá sem hafa leyfi til hundahalds kemur fram undir Stjórnsýsla - Samþykktir á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is. Skagaströnd 18. maí 2011 sveitarstjóri